Hinn eini og sanni Brauð & Co piparkökusnúður

höf: maria

-Samstarf-

Þið munið kannski eftir Brauð & Co snúða replicu uppskriftinni minni sem ég setti hér inn á sínum tíma.

Þar langaði mig svoooo mikið að mastera hinn eina og sanna Brauð & Co kanilsnúð, og tókst að mínu mati ansi vel til.

Nú hins vegar er ég með stórfréttir fyrir ykkur !!! Brauð & Co hvorki meira né minna en gáfu mér hina einu og sönnu uppskrift af piparkökusnúðunum sínum.

Já þið lásuð rétt, þeir gáfu mér uppskriftina sem þeir nota sjálfir í bakaríinu sínu og verð ég að segja að það var þvílíkur heiður að fá að vera fyrst til að deila henni með ykkur.

Hinn hefðbundni kanilsnúður frá þeim stendur alltaf fyrir sínu en piparkökusnúðurinn gefur honum ekkert eftir.

This image has an empty alt attribute; its file name is IMG_2531-683x1024.jpg

Meira að segja Gabríela mín sem borðar ekki piparkökur hakkaði snúðana í sig og gott betur.

Ekki nóg með að Brauð & Co hafi gefið mér uppskriftina af snúðunum sínum, heldur gáfu þeir mér einnig uppskriftina af piparkökudeiginu sínu.

Hægt er að kaupa tilbúið piparkökudeig og smákökudeig í Brauð & Co, og einnig eru þeir farnir að selja hveitið sem þeir nota í allan sinn bakstur.

Hveitið er lífrænt ræktað hveiti frá Ítalíu af gerðinni typo 00 sem er alveg tilvalið í snúðana. Hveitið fæst bæði í Brauð & co og svo Krónunni.

Í Brauð & Co snúðana er notað lífrænt ræktað marsípan frá Odense sem ég fann ekki í búðum en ég fann góðan staðgengil frá Odense sem hentar afar vel í fyllinguna.

Ég mæli með að þið notið Odense Original marsípanið en það er mjög aðgengilegt og fæst í bæði Bónus og Hagkaup.

Snúðana er lítið mál að gera heima, ég lofa, en það er best að henda í deigið kvöldinu áður og láta það hefast í kælir yfir nótt.

Það sama gildir um piparkökudeigið og fyllinguna, en hrærið í fyllinguna kvöldinu áður og geymið á volgum stað svo auðvelt verði að smyrja henni á snúðana.

Hér fyrir neðan setti ég inn skemmtilegt video af því hvernig Brauð & Co gerir sína snúða vs. hvernig hægt er að gera þá heima.

Endilega kikið á videoið en þar sjáið þið aðferðina mjög vel sem getur hjálpað ykkur við að gera snúðana.

Hinn eini og sanni Brauð & Co piparkökusnúður

-Samstarf- Þið munið kannski eftir Brauð & Co snúða replicu uppskriftinni minni sem ég setti hér inn á sínum tíma. Þar langaði… Bakstur Hinn eini og sanni Brauð & Co piparkökusnúður European Prenta
Serves: 10-11 snúðar Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

ATH !! Fylgið uppskrift alveg upp á 100, en allt þarf að búa til kvöldinu áður og er svo geymt þar til á að bakast daginn eftir. Deig bæði piparköku og snúða er geymt í kælir en fyllinguna á volgum stað. Myndband fylgir færslunni og mæli ég með að þú horfir á það, en þar er vel sýnt frá aðferðinni við að gera snúðana

Snúðadeig 

  • 750 gr hveiti (best ef þið getið nálgast Brauð og Co hveitið í græna pakkanum Typo 00, fæst í Brauð & Co og Krónunni)
  • 10 gr fínt borðsalt 
  • 112 gr lífrænt ræktaður hrásykur 
  • 112 gr íslenskt smjör mjúkt 
  • 22 gr pressuger (fæst alltaf í kælir bæði í Fjarðarkaup og Hagkaup) ef þið getið ekki nálgast pressuger notið þá 8 gr þurrger í staðinn, en ef þið getið nálgast pressuger notið það þá alltaf !!! 
  • 1 lítið egg við stofuhita
  • 325 gr vatn við stofuhita 

 

  • Aukalega 2 egg og 1 msk mjólk (til að pennsla snúða með á eftir, ath ekki sett í deigið)

Fylling

  • 250 gr lífrænt ræktaður hrásykur 
  • 250 gr íslenskt smjör mjúkt 
  • 250 gr Odense Original marsípan (fæst í Bónus og Hagkaup)
  • 50 gr kanill 
  • 30 gr negull
  • 20 gr engifer 
  • 7,5 gr hvítur pipar 

Piparkaka 

(Hægt er að kaupa tilbúið piparkökudeig í Brauð og Co ef þið viljið sleppa við að henda í það sjálf en það er gert úr sömu uppskrift)

  • 500 gr hveiti 
  • 500 gr púðursykur  
  • 160 gr  íslenskt smjör 
  • 3 egg við stofuhita 
  • 42 gr lyftiduft 
  • 6 gr matarsódi 
  • 8 gr engifer 
  • 3 gr kanill 
  • 3 gr negull 
  • 2 gr hvítur pipar 

Aðferð

Snúðadeig 

  1. Setjið öll þurrefni saman í hrærivélarskál og hrærið létt saman með króknum 
  2. Hrærið saman vatni við stofuhita og pressugeri og leggið til hliðar eins og í fimm mínútur 
  3. Takið þá eggið að þeim tíma liðnum og bætið út í gerblönduna og hrærið vel saman þar til er orðið vel blandað saman 
  4. Kveikjið nú á hrærivélinni á hægum hraða og bætið gerblöndunni varlega saman við 
  5. Skerið svo mjúkt smjörið í teninga og bætið saman við deigið meðan vélin er í gangi, bara smátt og smátt 
  6. Hnoðið nú á hægum hraða í 5 mínútur og takið tímann 
  7. Aukið svo hraðann upp í hratt og hnoðið áfram í 10 mínútur og takið tímann 
  8. Sáldrið svo smá hveiti í góða stóra skál og gerið kúlu úr deiginu. Setjið kúluna ofan í skálina og plastfilmu yfir og geymið í kælir yfir nóttina jafnvel alveg upp í 24 klst ef þið viljið 

Fylling

  1. Setjið saman sykur og marsípan í hrærivél eða blandara þess vegna  og hrærið vel saman 
  2. Blandið svo hægt og rólega saman mjúku smjörinu bara smá tening í einu 
  3. Setjið næst öll kryddin út í og hrærið vel saman þar til er orðið silkimjúkt og fíngert 
  4. Setið svo í skál og breiðið plastfilmu yfir og geymið á volgum stað yfir nótt eða þar til þið ætlið að nota hana

Piparkaka 

  1. Blandið öllum þurrefnum saman í hrærivél, nema sykrinum, með hnoðarann á og hrærið létt saman 
  2. Bætið svo eggjum út í en bara einu eggi í einu 
  3. Bræðið næst saman smjörið og sykur þar til sykurinn er alveg uppleystur. Blandið saman við deigið og hnoðið saman þar til er orðið silkislétt og glansandi fallegt piparkökudeig 
  4. Setjið í skál og breiðið plastfilmu yfir og geymið í kælir yfir nótt
  5. Takið svo út eins og klst áður en á að móta fígúrur úr því svo það sé auðvelt að fletja það út en gott er að sáldra smá hveiti undir deigið áður en það er flatt út 

Snúðasamsetning 

  1. Hitið ofninn á 50°c hita með blæstri og takið til tvær bökunarplötur undir snúðana með bökunarpappa á 
  2. Takið nú deigið úr skálinni og sáldrið ögn hveiti á borðið áður en þið fletjið það út og einnig ofan á deigið
  3. Ekki hnoða það neitt byrjið bara að fletja út jafnan ferning sem er þunnur eða eins og 0,5 cm þykkur 
  4. Ferningurinn á að vera 60 cm breiður og 75 cm langur (mikilvægt að fara eftir) eða eins þunnur og hægt er án þess að deigið verði gegnsætt
  5. Smyrjið öllu kanil Remosinu jafnt yfir ferninginn en sleppið eins og 5 cm á endanum sem er næstur ykkur, þ.e ekki smyrja á þá 5 cm 
  6. Rúllið svo deiginu varlega upp í pulsu en byrjið á endanum sem er fjær ykkur, ekki rúlla alveg að endanum nær ykkur heldur skiljið eftir þessa 5 cm sem Remosið er ekki á 
  7. Skerið svo í snúða en hér er mikilvægt að hver snúður sé alveg 9 cm þykkur og já það er mjög þykkt og þannig á það að vera
  8. Takið svo  5 cm endann sem þið rúlluðuð ekki upp og brettið hann undir snúðinn 
  9. Leggjið svo 4-5 snúða á hverja plötu og ýtið á hvern snúð með flötum lófa létt svo hann þeir fletjist ögn út
  10. Breiðið svo viskastykki yfir snúðana og setjið í 50°c heitan ofninn til hefingar í 60 mínútur, ekki lengur !! 
  11. Takið piparkökudeigið á meðan snúðar hefst og fletjið það út og skerið úr því fígúrur og geymið til hliðar
  12. Takið snúðana svo úr ofninum og hitið ofninn strax upp í 210°C  stillt á blástur (220°C-225°C ef þú ert ekki með blástursofn 
  13. Blandið næst saman 2 eggjum og 1 msk af mjólk og penslið snúðana með blöndunni
  14. Sáldrið vel af flórsykri yfir snúðana með sigti og ekkert vera að spara hann gott að slá eins og tvisvar í sigtið á þessu stigi (athugið þetta er gert áður en snúðarnir fara í ofninn að bakast, ekki á eftir)
  15. Leggjið nú eina piparkökufígúru stóra eða 3 minni á miðjan snúðinn og sáldrið örlítið meira af flórsykri yfir (slá eins og einu sinni í sigtið) 
  16. Stingið svo strax  í 210°c  heitan ofninn en gott er að setja nokkra klaka í ofnskúffu á botninn í ofninn. Bakið í sléttar 10 mínútur en fylgist vel með snúðunum því ofnar geta verið mismunandi heitir
  17. Leyfið snúðunum svo að standa á heitri plötunni í 10 mínútur upp á borði og borðið heita 
  18. Ef þið eigið afganga er gott að frysta og hita þá upp í örbylgju í 30 sekúndur þá verða þeir sem nýjir 

Gleðileg jól

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here