Þegar ég fer í bakarí kaupi ég mér ansi oft franska vöfflu. Franskar vöfflur hafa verið til í bakaríi síðan ég man eftir mér.
Það er bara eitthvað við stökkt ytra lagið og sæta mjúka kremið inn í sem ég fell alveg fyrir.
Hér ákvað ég að gera míni útgáfu af franskri vöfflu en ég hef oft keypt þannig í stórvörumörkuðum og ég held þær séu hafðar þannig á danska mátann.
Ég ákvað að sleppa því að dífa þeim í súkkulaði en ykkur er frjálst að gera það ef þið viljið hafa þær eins og í bakaríum landsins.
Frönsku vöfflurnar er ekki flókið að gera, en þetta er frekar stór uppskrift og því tilvalið að baka til að eiga í frystir og taka út ef gesti ber að garði.
Það dugir alveg að taka þær út eins og 15 mínútum áður en á að bera þær fram.
Hráefni
Deig
- 375 gr hveiti
- 375 gr mjúkt smjör
- 3 msk sykur eða hrásykur
- 1/2 tsk fínt borðsalt
- 1 dl vatn
- 1/2 dl rjómi eða nýmjólk
- 1 eggjahvíta til penslunar og sykur til að dreifa yfir
Krem
- 200 gr mjúkt smjör
- 300 gr flórsykur
- 1 eggjarauða
- 1 tsk vanilludropar
- 1/2 dl rjómi
Aðferð
Deig
- Setjið öll þurrefni saman í hrærivélarskál með króknum á og hrærið aðeins saman
- Bætið næst við mjúku smjörinu skorið í teninga, vatninu og rjómanum og hnoðið vel saman þar til er orðið kekkjalaust og glansandi
- Látið standa í kæli í 1 klst og gerið kremið á meðan
Krem
- Setjið smjör í hrærivélina með þeytaranum á og þeytið þar til er orðið ljóst og loftkennt
- Bætið þá flórsykri smátt saman við og hrærið áfram vel saman
- Bætið svo vanilludropum, eggjarauðunni og rjómanum saman við og þeytið vel og lengi þar til kremið er vel loftkennt og í hvítari kantinum
Aðferð við vöfflurnar og samsetning
- Fletjið kalt deigið út í þunnan ferning, eins þunnan og þið komist upp með án þess að sjáist í gegn
- Skerið svo hringi út með hringskera eða glasi og teygið svo úr hringnum þannig að hann verði ílangur eins og vöfflurnar á myndinni
- Endurtakið þar til allt deigið er búið og setjið á bökunarplötu með bökunarpappír
- Stingið göt í deigið með gaffli, penslið með eggjahvítunni og stráið þunnt lag af sykri yfir
- Stingið svo inn í 220 ° C heitann ofninn með blæstri og bakið í 7-8 mínútur og látið kólna á plötunni
- Þegar vöfflurnar hafa kólnað sprautið þá kremi á einn helming í þunni lagi og leggjið svo aðra vöfflu yfir
- Ef þið viljið þá getið þið brætt dökkt súkkulaði og dýft helmingnum út í og látið storkna
Verði ykkur að góðu
María
2 Athugasemdir
*penslið
búin að laga haha takk 🙂