Dýrðlegar appelsínu og súkkulaðibita smákökur í hollari kantinum

höf: maria

-Samstarf-

Þessar dýrðlegu smákökur eru í hollari kantinum, það þýðir samt ekki að það bitni á bragði né gæðum.

Hollt þýðir ekki alltaf vont, en ég get garanterað að engin mun finna mun á þessum né öðrum smákökum.

Hollt þýðir ekki heldur megrun eða að þær séu grennandi. Hér erum við að ræða um lífrænt ræktuð hráefni sem hafa aðeins meiri næringu að gefa en hvítt hveiti og hvítur sykur.

Þær eru gerðar úr spelti, hrásykri, Rapadura sykri og í staðin fyrir smjör var notast við döðlukókós möndlusmjörið frá Rapunzel.

Kökurnar eru eins og blanda af amerískum súkkulaðibitasmákökum og hafraklöttum.

Þær eru stökkar að utan, frekar þungar í sér með mjúkri klístraðri miðju sem ég elska. Svo er súkkulaði og appelsínukeimur af þeim án þess að vera yfirþyrmandi.

Hægt er að borða þær kaldar eins og smákökur, en nokkrir hér á heimilinu fengu sér þær heitar beint úr ofninum með vanilluískúlu ofan á.

Hvort sem þú ert í hollustu eða ekki get ég ekki annað en mælt með þessum kökum en krakkarnir elska þær lík og þetta er hollari kostur fyrir þau.

Bragðið minnir mig síðan mest á gamla góða Maryland kexið sem fékkst á sínum tíma með appelsínubragði.

Dýrðlegar appelsínu og súkkulaðismákökur í hollari kantinum

-Samstarf- Þessar dýrðlegu smákökur eru í hollari kantinum, það þýðir samt ekki að það bitni á bragði né gæðum. Hollt þýðir ekki… Bakstur Dýrðlegar appelsínu og súkkulaðibita smákökur í hollari kantinum European Prenta
Serves: 19 stk Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 200 gr fínt spelt 
  • 1 tsk vínsteinslyftiduft 
  • 1/2 tsk fínt borðsalt 
  • 50 gr haframjöl 
  • 250 gr eða 1 krukka Rapunzel möndlukókós smjör (coconut and almond butter)
  • 50 gr kókósolía við stofuhita
  • 110 gr hrásykur frá Rapunzel 
  • 80 gr Rapadura sykur frá Rapunzel 
  • 2 egg 
  • 2 tsk vanilludropar 
  • 2 tsk appelsínudropar (eru við hlið vanilludropa í t.d Hagkaup og Fjarðarkaup)
  • 80 gr Rapunzel appelsínusúkkulaði skorið smátt 
  • Börkur af 1 appelsínu (passa að raspa bara það appelsínugula en ekki hvíta undirlagið)

Aðferð

  1. Hitið ofn á 180 C° blástur 
  2. Setjið í frekar smáa skál spelt, vínsteinslyftiduft, haframjöl og salt og hrærið saman 
  3. Setjið svo í hrærivélarskál möndlukókóssmjör, kókósolíu, og öllum sykrinum og hrærið með hræraranum (ekki þeytaranum) þar til ljóst og létt 
  4. Bætið þá röspuðum appelsínubörk, eggjum einu í einu,  vanilludropum og appelsínudropum út í og hrærið áfram þar til er loftkennt ljóst og létt 
  5. Passið að stoppa aðeins á milli og skafa af köntunum í skálinni svo að það hrærist allt vel saman
  6. Hafið svo hrærivélina í gangi og bætið speltblöndunni rólega út í þar til allt er rétt blandað saman, ekki ofhræra 
  7. Setjið svo appelsínu súkkulaðið út í skorið í litla ferninga og hrærið létt saman 
  8. Athugið að degið er frekar blautt en þétt í sér 
  9. Mótið svo kúlur frekar stórar úr vænni msk af deigi og setjið á bökunarplötu með smjörpappa, deigið dugar í c.a 19 kúlur
  10. Bakið svo í 12-14 mínútur og takið út og kælið.  Þær eru líka góðar heitar með vanilluískúlu ofan á

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here