Þessar Brownie kökur eru smá öðruvísi en fólk á að venjast en myntukremið á milli er eldgömul uppskrift frá 1983 af myntukremi sem mamma gerði alltaf í afmælum mínum þegar ég var krakki.
Svo bara einhvernveginn gleymdist hún þar til um daginn að hún rifjaðist allt í einu upp fyrir mér. Mamma þurfti að grafa eftir uppskriftinni en loks fannst hún hjá móðursystur minni.
Kremið er allt öðruvísi en maður á að venjast, ekki þetta hefðbundna frosties krem, heldur er það svona meira í ætt við sykurpúða eða eins og gumsið inn í súkkulaðifroskum.
Það passar mjög vel með þessum Brownies kökum sem eru þéttar í sér og afar bragðgóðar. Það er alveg merkilegt að kökurnar eru enn betri því eldri sem þær eru.
Ég er ekki að tala um eitthvað hundgamlar heldur bara alveg upp í nokkra daga, en best er að geyma þær í ísskáp. Ég frysti líka nokkra bita og lét þiðna í kæli.
Ef þú ert fyrir súkkulaði og myntu þá ættu þessar að gleðja þig því þær eru bara alveg sakalega góðar. Kakan er þétt í sér svo ég myndi skera hana í frekar smáa bita.
Hráefni
Kakan sjálf
- 230 gr ósaltað smjör
- 230 gr suðusúkkulaði
- 300 gr sykur
- 100 gr ljós púðursykur
- 4 stór egg við stofuhita
- 2 tsk vanilludropar
- ½ tsk salt
- 85 gr hveiti
- 20 gr bökunarkakó
Retro myntukrem á milli
- 1 bolli sykur
- ½ bolli vatn
- 5 matarlímsblöð
- 1 tsk piparmyntudropar
- Grænn matarlitur en má sleppa
Súkkulaðibráð ofan á
- 115 gr ósaltað smjör
- 200 gr eða tvær plötur af myntu suðusúkkulaði
Aðferð
Kakan sjálf
- Bræðið súkkulaði og smjör saman í potti við miðlungsháan hita og hrærið stöðugt í á meðan svo brenni ekki
- Setjið svo í hrærivélarskál og kælið í 10 mín
- Þegar hefur kólnað í þessar 10 mín hrærið þá sykrinum öllum út í súkkulaðið með písk
- Bætið nú 1 eggi út í í einu og hrærið með písk áfram bara létt saman
- Sigtið næst hveiti og kakó út í blönduna og setið salt og vanilludropa saman við
- Hrærið eins lítið saman og hægt er í hrærivélinni svo kakan verði ekki seig en bara rétt þannig að hráefnin blandist saman
- Setjið álpappír eða bökunarpappír í mót sem er um 28 x 18 cm eða 23 x33 cm að stærð
- Spreyið bökunarspreyi í pappan og setjið deigið í og bakið við 180 C°blástur í 40-50 mín eða þar til hnífur eða prjónn kemur hreinn upp úr miðju þegar stungið er í kökuna.
Myntukremið
- Setjið sykur og vatn í pott og látið sjóða í 10 mín (ekki hræra í á meðan), leyfið því að bubbla í friði
- Bleytið matarlímsblöðin í köldu vatni á meðan
- Takið sykurvatn til hliðar og leyfið að kólna örlítíð þarf ekki að vera alveg kælt bara mesta hitann úr
- Setjið svo sykurblönduna í hrærivél og hrærið á fullum hraða þar til verður svona eins og hvítt á lit
- Setjið þá matarlímið (vatn kreist burt), piparmyntudropa og matarlit út í og hærið þar til verður loftkennt
- Leyfið því aðeins að stífna og setjið þá á kælda kökuna og stingið kökunni í kæli
Krem ofan á
- Smjör og piparmyntusuðusúkkulaði er brætt saman í potti og svo sett yfir piparmyntukremið þegar kakan hefur aðeins kólnað með piparmyntukreminu á í kæli
- Leyfið svo kökunni að vera í ísskáp í allavega eins og eina klst áður en hún er borin fram eða meðan súkkulaðibráðin er að stífna
Punktar
Oft myndast svona þurrt upphleypt efsta lag á Brownies sem brotnar auðveldlega af. Best er að taka allt þannig af efsta lagi kökunnar áður en kremið er sett á. Geymið kökuna í kæli og ef það er afgangur sem þið viljið geyma er gott að setja hana í frystir en uppkriftin er frekar stór. Þegar þið gerið myntukremið er best að leyfa því að standa í pínu stund svo það sé búið að þykkna aðeins og leki ekki um allt. Ef kremið er frekar þykkt og stíft setjið það þá strax og það er til á kökuna því það stífnar svo meira. Þetta getur verið misjafnt eftir því hvernig soðna sykurvatnið kemur út.