Þessi stykki eru algjör snilld að mínu mati. Þau eru full af prótein og hollri fitu svo þau eru hið fullkomna millimál eða nesti.
Þau eru ekki bara góð heldur súperholl líka. Þau innihalda alls kyns fræ og Quinoa sem er prótenríkasta korn sem hægt er að fá.
Sætan kemur svo úr döðlum sem eru járn, steinefna og trefjaríkar. Hér er gott saman við hollt og akkurat þannig á það að vera.
Svo er allt heila klabbið toppað með 70 % súkkulaði eða heimagerðu hrásúkkulaði en þið ákveðið bara sjálf hvort þið viljið nota.
Þessi stykki er afar einfalt að gera og þarf ekkert nema skál og sleif til verkisns og smá krafta til að hræra.
Hráefni
- 5 Medjool döðlur (eða 8-10 stk af ferskum döðlum)
- 80gr haframjöl
- 130gr óeldað Quinoa (beint úr pokanum)
- 70gr gróft skornar möndlur
- 70gr graskersfræ
- 1 tsk chiafræ
- 125gr möndlusmjör (má vera ljóst eða dökkt og þess vegna hnetusmjör eða Tahini)
- 115 gr hunang
- 1 tsk vanillu extract
- 1/4 tsk salt
- 60 gr bráðið 70 % súkkulaði
Heimagert hrásúkkulaði:
- 1 dl bráðin kókósolía
- 1 dl dökkt kakó (best lífrænt ræktað)
- 1/2 dl agave eða hlynsíróp
Aðferð
- Hitið ofninn á 150 C°blástur
- Setjið dölðlurnar í matvinnlsuvél og stillið á pulse. Maukið þar til þær verða að mauki, má setja smá vatn með ef þarf en bara pínu pons
- Setjið nú döðlumaukið í skál og bætið við restinni af hráefnunum, öllu nema súkkulaðinu
- Hrærið nú vel saman með sleif, hér þarf sterka upphandleggsvöðva
- Setjið nú bökunarpappír í eldfast mót og látið pappírinn ná vel yfir alla barma til að auðvelt sé að smella svo kökunni upp úr
- Bakist í 20-25 mínútur eða þar til orðið gyllinbrúnt að lit og aðeins dekkra í köntunum
- Látið nú kólna í1 klst upp á borði í mótinu, og setjið svo í ísskáp í aðra klst eða í frysti í 30 mínútur
- Takið svo út og skerið í ferninga og toppið með bræddu 70 % súkkulaði sem brætt er yfir vatnsbaði eða með heimagerða súkkulaðinu
- Þá er kókósolían brædd undir heitri bunu og svo kakó og síróp sett saman við og hrært varlega saman með gaffli
- Geymist við stofuhita í 1 viku og einnig er hægt að fyrsta stykkinn og taka út eitt og eitt 10 míntútum áður en maður ætlar að fá sér
Punktar
Ef þið viljið hafa þetta meira sætt má alveg leika sér smá með uppskriftina. Setja aukalega þurr trönuber við sem dæmi, eða eitthvað annað sem ykkur finnst gott eins og rúsínur eða brómber.
knús
María
Endilega fylgdu mér á Instagram