Þennan fiskrétt fann ég upp á að gera fyrir mörgum mörgum árum síðan og hef ég gert hann örugglega 1000 sinnum og alltaf við góðar undirtektir.
Það er bara eitthvað við að kaupa tilbúina fiskrétti sem ég fíla ekki. Ég held að það sé að sósan verður alltaf að þunnu bragðlausu vatni. Hér aftur á móti verður sósan áfram þykk og djúsí.
Fiskréttinn kalla ég exótískan því hann er samangerður úr hráefnum sem minna mig á trópíkal eyju eins og ananas og kókósflögum.
Dásamleg sæt sinnepssósa með graslauk toppar þetta svo allt með bræddum osti yfir.
Ég lofa að þessi er svakalega góður og þeir sem elska góða heita rétti ættu svo sannarlega að elska þennan. Ekki skemmir fyrir að hann er rosa auðveldur að gera.
Hráefni
- 1 glas af grófum grjónum á móti 2 glösum af vatni (ATH þurfa 30-45 mínútna suðu)
- Salt, sítrónusafi og þurrkuð steinselja til að krydda grjóninn
- 800-1000 gr ýsa eða þorskhnakkar (mér finnst ýsa betri)
- 1 lítil dós ananas
- 1/2 gul eða appelsínugul papríka
- 15 gr kókósflögur eða kókósmjöl
- 1 stór dós kotasæla
- 1 dós sýrður rjómi með graslauk (þessi í grænu dollunum)
- Smá búnt af ferskum graslauk
- 2 msk hunang
- 3 msk sætt sinnep
- Rifinn ostur
- Oggupons papríkuduft
- salt og pipar
Aðferð
- Byrjið á að sjóða grjóninn og saltið, setjið sítrónusafa og þurrkaða steinselju út á eftir smekk
- Þegar grjónin eru soðin setjið þau þá í botninn á eldföstu móti
- Raðið svo ýsubitunum yfir og saltið og piprið
- Skerið svo ananas og papríku í litla bita og dreifið yfir ýsuna ásamt kókósflögunum
- Smyrjið svo næst kotasælunni yfir allt saman
- Næst er svo að gera sinnepssósuna með sýrða rjómanum, hunanginu og sæta sinnepinu
- Klippið svo smá ferskan graslauk út í ef þið villjið og hrærið sósunni vel saman
- Hellið svo sinnepssósunni yfir kotasæluna og dreifið rifna ostinum yfir allt heila klabbið. Getið sett ferskan mozarella með líka sem er mjög gott
- Gott er svo að setja oggupons af papríkudufti yfir ostinn.
- Hitið svo réttinn í ofni við 200 C°blástur í 35 mínútur
- Gott er að láta réttinn standa og blása aðeins úr sér í 10 mínútur áður en hans er neytt
Verði ykkur að góðu
María
2 Athugasemdir
Þessi fiskréttur er æði eldaði hann í gær 👌
Vá hvað ég er glöð að heyra takk fyrir að senda á mig línu. Elska að fá svona skilaboð 🙂