Stökkar parmesan kjúklingabollur með tómatpasta

höf: maria

-Samstarf-

Hér er á ferðinni ný tegund af bollum sem mig langaði að prófa að gera. Ég ákvað að blanda saman hráefnum sem ég vissi að geta ekki klikkað saman.

Kjúklingur, hvítlaukur og parmesan, í tómatpasta með basil og enn meiri parmesan. Úff hér er fátt sem getur klikkað. Fyrir fullkomna máltíð mæli ég með að bera ferskt salat og hvítlauksbrauð með.

Það er ekki hlaupið að því að fá kjúklingahakk í búðum og því notaðist ég bara við heil læri sem ég hakka í matvinnsluvél, það þarf engin aukatól bara matvinnsluvél.

Ef þið finnið kjúklingahakk og viljið losna við að hakka sjálf þá er það líka besta mál en annars getið þið farið að þessu svona eins og ég geri.

Til að auðvelda þetta allt saman ákvað ég að nota tilbúna pastasósu frá Hunts og bragðbæta hana á minn hátt með því að nota púðursykur og tómatpúrru en mér finnst það alltaf gera tómatbragðið enn dýpra.

Ég lofa þetta er einfalt og ekki mikil fyrirhöfn, en ég set bollurnar beint í ofninn svo það þarf ekki einu sinni að steikja. Þær verða rosa krispý en mjúkar og rakar inn í þökk sé pankoraspi sem gerir allt stökkt.

Stökkar parmesan kjúklingabollur með tómatpasta

-Samstarf- Hér er á ferðinni ný tegund af bollum sem mig langaði að prófa að gera. Ég ákvað að blanda saman hráefnum… Aðalréttir Stökkar parmesan kjúklingabollur með tómatpasta European Prenta
Serves: 4-6 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Kjúklingabollurnar

  • 500 gr úrbeinuð læri (ég á alltaf frosin frá Rose) eða 500 gr kjúklingahakk ef þið finnið
  • 1/2 laukur 
  • 1/2 til 1 geiralaus hvítlaukur eða 2-4 hvítlauksrif 
  • 1 egg 
  • 2 brauðsneiðar 
  • 2 msk kjúklingakraftur í duftformi (ég notaði frá Oscar) 
  • 1 msk þurrkuð steinselja 
  • 50 gr parmesan ost 
  • 1/2 bolli panko rasp (alls ekki rugla saman við Paxo ekki það sama)
  • 1/2 bolli rifinn parmesan ostur 

Pastað 

  • 300 gr pastaslaufur eða annað pasta að eigin vali 
  • 1 dós Hunts pastasósa með hvítlauk og osti (cheese and garlic)
  • 1 dós tómatpúrra frá Hunts
  • 1 msk agave eða púðursykur 
  • 10 mozzarella kúlur (má sleppa) 
  • Fersk basilika 

Aðferð

Kjúklingabollurnar

  1. Setjið brauð, lauk, hvítlauk og 50 gr parmesan ost saman í matvinnsluvél og maukið alveg í duft
  2. Takið úr matvinnsluvélinni og leggið til hliðar 
  3. Setjið nú lærinn í matvinnsluvélina og notið pulse takkann, maukið þar til það er orðið svona eins og hakk/mauk. Passið samt að mauka ekki of lengi né of mikið því þá verður kjötið seigt
  4. Setjið þá kjúklinginn í skál og hellið parmesan brauðblöndunni út á. Setjið líka kjúklingakraftinn, steinseljuna og egg með og hnoðið létt. 
  5. Passið að hnoða ekki of mikið bara þannig að allt blandist saman annars verða bollurnar seigar. Hér er gott að eiga einnota hanska 
  6. Setjið pankorasp ásamt 1/2 bolla af rifnum parmesan saman á matardisk og hrærið vel saman 
  7. Byrjið nú að móta bollur á stærð við sænskar kjötbollur og veltið svo hverri bollu upp úr parmesanpanko blöndunni
  8. Raðið á ofnplötu með smjörpappa og eldið við 220 C°blástur í 35 mínútur eða þar til þær verða fallega gylltar og stökkar

Pastað 

  1. Setjið vatn í pott og saltið mjög mikið, á að vera salt eins og sjór 
  2. Látið suðuna koma upp og setjið þá pastað út á og stillið klukku á 9 mínútur c.a 
  3. Á meðan er gott að láta pastasósuna í pott með tómatpúrruni og agave eða púðursykrinum og leyfa suðu að koma upp 
  4. Gott að leyfa sósunni að sjóða meðan pastað mallar 
  5. Hellið svo vatninu af pastanu og alls ekki skola það 
  6. Hellið því beint út á pottinn með sósunni og hrærið saman og slökkvið undir 
  7. Ef þið viljið hafa mozzarella ost í þá er gott að setja hann í þegar slökkt er undir 

 

Punktar

Best er að bera þetta fram með auka parmesan til að raspa yfir og ferskri basiliku til að sáldra yfir. Ferskt salat og hvítlauksbrauð klikkar ekki með líka 

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here