Leyniuppskrift af djúpsteiktum rækjum með grjónum og súrsætri sósu

höf: maria

-Samstarf-

Alltaf þegar ég fer á kínastað verður sami rétturinn fyrir valinu, djúpsteiktar rækjur með grjónum og súrsætri sósu.

Ég hef valið þennan sama rétt allt frá því ég var barn. Alba elskar þennan rétt líka svo hann er krakkavænn en kannski ekki hollasti kosturinn.

En eins og máltækið segir allt er gott í hófi og það má sko vel leyfa sér hann spari og jafnvel oftar eins og í matarboðum sem dæmi.

Þetta er mun auðveldara að gera en ykkur grunar og tekur ekki nema um hálftíma í allt. Svo er orlýdeigið algjör leynisuppskrift sem notuð er á asískum veitingastöðum.

Það er algjör skylda að bera fram með honum góð klístruð grjón og súrsæta sósu og svo má ekki gleyma sojasósu á grjónin.

Það sem mér finnst reyndar aðeins galli við að kaupa þennan rétt á asískum stað er að það er meira deig en rækjur svo hér ákvað ég að nota risarækjur og það kom rosa vel út.

Hver bolla inniheldur rækju alveg eins og það á að vera, en ég notaði risarækjur frá Sælkerafisk. Svo mun það koma ykkur á óvart að súrsæta sósan er gerð úr Hunts tómatssósu.

Hana lærði ég að gera hjá Thailenskri konu sem laumaði líka orlýdeig uppskriftinni að mér svo þið megið bóka að hér fáið þið Gourmet útgáfu að þessum rétt.

Hvað er betra en súkkulaði og Kínverskur matur ?

Leyniuppskrift af djúpsteiktum rækjum með grjónum og súrsætri sósu

-Samstarf- Alltaf þegar ég fer á kínastað verður sami rétturinn fyrir valinu, djúpsteiktar rækjur með grjónum og súrsætri sósu. Ég hef valið… Matur Leyniuppskrift af djúpsteiktum rækjum með grjónum og súrsætri sósu European Prenta
Serves: 3-4 Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 350 gr risarækjur frá Sælkera fisk 
  • 2 pokar Tilda masmati grjón 
  • 1,5 líter af grænmetisolíu ég notaði frá Wesson 

Orlýdeig 

  • 150 gr hveiti 
  • 75 gr maizena mjöl (ekki sósu þykkirinn heldur sem stendur majsstivelse og er í gulum kassa) 
  • 1/2 tsk fínt borðsalt
  • 1 tsk lyftiduft 
  • smá pipar 
  • 1 tsk sykur 
  • 1 msk fiskisósa (ég notaði frá Blue Dragon)
  • 2 dl pilsner 

Súrsæt sósa 

  • 1 dl Hunts tómatssósa (ketchup) 
  • 2 dl vatn 
  • 70 gr sykur 
  • klípa af salti 

Aðferð

  1. Verið búin að afþýða rækjurnar áður en þið hefjist handa 
  2. Byrjið á að setja allar rækjurnar á eldhúspappa til að taka allan raka úr þeim og dempið þær líka með eldhúspappír 
  3. Takið svo halan af með því að toga í endann á honum og halda fast um neðsta part rækjunnar 
  4. Setjið næst hrísgrjónin í pott og saltið vel og látið sjóða í 12 mínútur 
  5. Gerið næst orlýdeigið með því að blanda öllum hráefnum saman og hræra mjög vel, setjið svo til hliðar meðan súrsæta sósan er útbúin 
  6. Setjið allt sem á að fara í súrsætu sósuna saman í pott og látið byrja að sjóða og hrærið vel. Sjóðið í eins og 1 mínútu og leggjið til hliðar
  7. Setjið næst olíuna á djúpa pönnu með þykkum botni eða stóran pott með þykkum botni og hitið á hæsta styrk (má líka notast við djúpsteikingarpott auðvitað ef þið eigið) 
  8. Setjið næst eins og 5-6 rækjur í einu út í deigið og passið að drekkja þeim alveg í deiginu 
  9. Þegar olían er orðin heit veiðið þá hverja rækju upp úr deiginu með matskeið og hafið vel af deigi með og setjið út í olíuna svona eins og 5-6 í einu 
  10. Setjið svo steiktar rækjur á disk með eldhúspappa á til að öll aukaolía farið í pappann
  11. Berið svo fram með grjónunum, sojasósu og súrsætu sósunni en ekki hella henni yfir rækjurnar áður en þær eru bornar fram. Notið hana bara til að dýfa í 

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here