Við elskum bleikju og silung hér á heimilinu. Þegar er til afgangur af bleikju finnst mér geggjað að gera mér ferskt og gott bleikjusalat.
Salatið er í senn afar bragðgott og holt og ekki skemmir fyrir að það er líka mjög fljótgert. Svo finnst mér voða gott að gera mér dressingu út á salatið sem setur punktinn yfir i-ið.
Salatið er pakkað af Omega-3 fitusýrum og annari hollri fitu. Þar mætist sæta á móti söltu, en sæt melónan og sólblómafræin eru fullkomið mótvægi við saltar ólífurnar, fetaostinn og fiskinn. Þið bara verðið að prófa….
Hráefni
- 1/2-1 flak afgangsbleikja þ.e elduð og kæld
- 1 box Piccolotómatar
- Grænar ólífur (magn eftir smekk)
- 1/2 bolli sólblómafræ
- 1 tsk tamarisósa
- 2 tsk hunang
- Hálf gul melóna (hunangsmelóna)
- 1 poki klettasalat
- 1 dl fetaostur
Dressing:
- 1 dl grísk jógúrt
- 1/2 dl Sweet chili sósa
Aðferð
- Byrjið á að rista fræin á pönnu með tamarísósunni og hunanginu
- Setjið í frysti og kælið
- Skerið næst melónuna í bolta ef þið eigið þannig skeið. Annars bara í bita
- Raðið klettasalatinu á disk
- Bætið svo tómötum, melónu, ólífum og fetaostinum út á
- stráið fræunum svo yfir að lokum og gerið dressinguna
- Jógúrt og Sweet chili sósa er hrært saman og má þess vegna salta ögn
- Berið svo dressinguna fram með salatinu
Verði ykkur að góðu
María