Bökuð Brownie Turtle ostakaka

höf: maria

-Samstarf-

Mér finnst bökuð ostakaka alltaf svo góð en áferðin á þannig ostakökum er alltaf öðruvísi en á þeim sem eru ekki bakaðar.

Hún er meira svona þurr og þétt í sér og ekki eins sæt þegar hún er bökuð, en mér finnst báðar gerðirnar afar góðar enda mikil ostakökukona.

Ég nota alltaf Philadelphia rjómaost þegar ég geri ostakökur en mér finnst hann einfaldlega bestur, og svo er hann svo skjannahvítur og silkimjúkur og auðvelt að vinna með hann.

Hér er botninn brownie kaka en það er svo frábært að baka þessa köku því hún er afar einföld og hér þarf ekkert nema písk og handþeytara, ég sleppi alveg hrærivélinni, enda með öllu óþörf.

Deigið í botninn og ostakökuna er gert í sitthvoru lagi og hellt ofan á hvort annað og bakað í jafnlanga stund í sama formi Bæði deigin eru afar einföld að gera og einnig súkkulaðibráðina sem kemur ofan á.

Kakan er best köld og því finnst mér gott að vera búin að kæla hana í nokkrar klukkustundir áður en hún er borin fram eða jafnvel gera hana kvöldinu áður, en hún er sko ekki síðri daginn eftir.

Bökuð brownie turtle ostakaka

-Samstarf- Mér finnst bökuð ostakaka alltaf svo góð en áferðin á þannig ostakökum er alltaf öðruvísi en á þeim sem eru ekki… Sætt Bökuð Brownie Turtle ostakaka European Prenta
Prep Time: Cooking Time:
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Brownie botn 

  • 115 gr smjör 
  • 115 gr suðusúkkulaði 
  • 150 gr sykur 
  • 50 gr púðursykur 
  • 2 egg 
  • 1 tsk vanilludropar 
  • 1/2 tsk salt 
  • 45 gr hveiti 
  • 10 gr bökunarkakó (ég notaðist við Cadbury)

Ostakakan

  • 450 gr Philadelphia Original rjómaostur 
  • 2 egg 
  • 115 gr sykur 
  • 1 tsk vanilludropar 

Súkkulaðibráð og ofan á 

  • 60 gr suðusúkkulaði 
  • 60 gr rjómi 
  • Lófafylli af pekanhnetum
  • 50 gr smátt skorið suðusúkkulaði eða súkkulaðidropar 

Aðferð

Brownie botn 

  1. Byrjið á að hita ofn á 180 C°blástur 
  2. Bræðið súkkulaði og smjör saman í potti við miðlungsháan hita og hrærið stöðugt í á meðan svo brenni ekki
  3. Setjið svo í hrærivélarskál og kælið í 10 mín
  4. Þegar hefur kólnað í þessar 10 mín hrærið þá sykrinum öllum út í súkkulaðið með písk
  5. Bætið nú 1 eggi út í í einu og hrærið með písk áfram bara létt saman
  6. Sigtið næst hveiti og kakó út í blönduna og setið salt og vanilludropa saman við
  7. Hrærið eins lítið saman og hægt er í handþeytara eða með písk svo kakan verði ekki seig en bara rétt þannig að hráefnin blandist saman
  8. Smyrjið kringótt bökunarmót sem er 23-24 cm í þvermál og hellið deiginu ofan í 

Ostakakan

  1. Setjið ostinn í skál og hrærið hann upp með handþeytara
  2. Bætið svo sykri, eggjum og vanilludropum saman við og þeytið þar til allt er blandað saman og orðið frauðkennt og  ljóst 
  3. Hellið svo blöndunni yfir brownie blönduna og setjið í ofninn í 30 mínútur við 180 C°, lækkið svo niður í 165 C°og hafið í 15 mínútur í viðbót 
  4. Gott er að gera súkkulaðibráðina á meðan 15 mínútur eru eftir 

Súkkulaðibráð 

  1. Brjótið 60 gr suðusúkkulaði ofan í skál 
  2. Hitið svo rjómann upp að suðu 
  3. Hellið honum svo beint út á súkkulaðið í skálinni og látið standa stutta stund 
  4. Hrærið svo vel saman með gaffli eða písk þar til það er orðið þykkt og silkimjúkt og leggjið til hliðar
  5. Skerið í pínulitla ferninga 50 gr af suðusúkkulaði og brjótið pekanhneturnar smátt milli fingranna 
  6. Hellið svo súllulaðibráðinni yfir kökuna þegar hún hefur aðeins kólnað og dreifið hnetunum og smátt skorna súkkulaðinu yfir og kælið 
  7. Best er að bera kökuna fram kælda 

Punktar

Kakan er best köld og því finnst mér gott að vera búin að kæla hana í nokkrar klukkustundir áður en hún er borin fram eða jafnvel gera hana kvöldinu áður, en hún er sko ekki síðri daginn eftir.

Verði ykkur að góðu

María

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here