Ég er sko ekkert að grínast hér þegar ég segi að þetta séu bestu vatnsdeigsbollur í heimi.
Ég veit ekki hversu oft ég hef bakað bollur sem koma fullkomnar út úr ofninum, en svo púfff, limpast niður. Kannist þið við þetta ?
Hin fullkomna bolla á að vera full af lofti og hol að innan svo hún rúmi nóg af sultu og rjóma. Ég get lofað ykkur því að þessi bollu uppskrift er allur pakkinn, og mikið svakalega voru þær góðar.
Að fylla þær með Den Gamle Fabrik sultunum og þeyttum rjóma gerir bolluna fullkomna. Eins og margir vita þá eru Den Gamle Fabrik sulturnar Rolsinn í sultunum, en þær eru að mínu mati bara bestar.
Ég lofa að þið verðið ekki svikinn af þessari ofurauðveldu en klikkað góðu bollu uppskrift sem ég loksins náði að gera fullkomna. Það eina sem þið verðið að gera er að fara nákvæmlega upp á gramm eftir uppskriftinni !!
Hér er mikilvægt að slumpa ekki eða breyta og bæta, það er alveg bannað.
Fallegi hvíti kökudiskurinn á myndunum er fullkominn undir bollurnar en hann fæst í Bast í Kringlunni.
Hráefni
- 115 gr smjör eða Ljóma (best að vigta á vog)
- 235 gr vatn (vigtið það á vog)
- 1/2 tsk salt
- 1 tsk sykur
- 130 gr hveiti
- 4 egg
Glassúr ofan á:
- 3dl flórsykur
- 3 msk kakó
- vatn eftir því hversu þykkan þið viljið hafa hann en byrjið samt fyrst bara með 1-2 msk og bætið svo við
- klípa af salti
- Þessu er öllu hrært saman í skál og þá er glassúrinn til
Aðferð
- Setjið vatn, salt, sykur og smjör í pott yfir miðlungshita
- Hitið saman þar til byrjar að sjóða
- Þegar suðan er komin upp setjið þá hveitið út í og hrærið stöðugt í með sleif þar til myndast eins og filma í botninn á pottinum og deigið er orðið vel blandað saman (alveg í eins og 1-3 mín)
- Setjið svo deigið til hliðar í 3 mínútur (takið tímann og hafið það áfram í pottinum)
- Bætið nú einu eggi út í og hrærið stöðugt. Fyrst bregður ykkur og haldið að deigið sé að skemmast því það fer allt í sundur en hrærið þar til það er samsett aftur. Hér notið þið bara áfram pottinn og sleif, ekki setja yfir í hrærivél.
- Þá er að bæta eggi númer 2 í og þá gerist aftur það sama. Þegar deigið er samsett aftur þá er eggi 3 bætt í og haldið áfram svona þar til öll egginn 4 eru komin út í
- Mér finnst best að sprauta deiginu á ofnskúffu með bökunarpappa
- Þá tek ég plast sprautupoka og klippi frekar stórt gat á pokann en hef engann stút
- Svo sprauta ég bollu á skúffuna og passa að hafa ágætt bil á milli næstu bollu
- Dýfið svo puttanum í vatn og strjúkið yfir geirvörtuna sem myndast ofan á bolluna eða toppinn sem stendur upp þannig að bollan verði flöt ofan á
- Penslið svo að lokum með hrærðu eggi (megið sleppa en gerir þær mjög flottar)
- Bakist í 30-35 mínútur á 190 C° blæstri
- Þegar bollurnar eru teknar út látið þær þá alveg í friði ofan á ofnskúffunni þar til þær eru orðnar kaldar þá falla þær ekki og halda lögun sinni
- Skerið þær svo í sundur og setjið sultu á botninn og rjóma ofan á og lokið
- Toppið með súkkulaðiglassúr og eða flórsykri en bæði er rosa gott
Punktar
Hér er mikilvægt að slumpa ekki eða breyta og bæta, það er alveg bannað. Farið alveg 100 % eftir uppskriftinni til að þær takist sem allra best hjá ykkur. Hér þurfið þið bara pott og sleif, ekki færa neitt yfir í hrærivél eins og er svo oft gert, það er alveg óþarfi. Ykkur gæti fundist eins og deigið sé lint og leki á plötunni en ekki hræðast því bollurnar lyftast og stækka mjög mikið í ofninum.
Verði ykkur að góðu
María
Endilega fylgið mér á Instagram