Mynduð þið trúa mér, ef ég segði ykkur, að það að gera heimagerðan BBQ twister, sem er í senn hollari, ódýrari og jafnvel enn betri, tæki styttri tíma en að fara út í bíl og bíða í röð eftir einum slíkum á skyndibitastað ??
Nei eflaust ekki en ég sver að þessi er svaka auðveldur og tekur mjög stuttan tíma að gera. Auk þess er hann bara aðeins of góður !!
Ég get glatt ykkur með því tilkynna ykkur að vefjurnar frá Mission Wraps eru komnar til landsins. Þær eru alveg fullkomnar í þennan rétt.
Til að fá svo þetta útlenska bragð var ekki að spyrja að því að ég notaðist við Majónesið frá Heinz. Það gerði það að verkum að það fannst akkurat engin munur á hinni upprunalegu sósu og svo þessari !
Það sem er síðan allra best við þetta er að hér þarf ekki að djúpsteikja kjúllann, né neitt vesen. Heldur velti ég honum upp úr Kornfleksi og bakaði hann í ofninum.

Hráefni
Kjúllinn
- 800 gr úrbeinuð læri
- 6 bollar mulið kornflakes
- 1/2 bolli hveiti
- 4 egg
- 2 tsk salt
- 2 tsk cayenne pipar
- 2 tsk þurrkað Timian
- 1-2 pakka af Mission Wraps með grillrönd
- 2 bollar af Classic eða Sweet BBQ sósu frá Heinz
- Lambahaga kál í potti
- 1 box kirsuberjatómata
- Cooking sprey
Piparmajónessósa:
- 2 dl Heinz majónes
- 2 tsk sítrónusafi beint úr ávextinum
- 1 tsk svartur pipar
- 1/2 tsk borðsalt
Aðferð
- Setjið hveiti í eina skál og mulið kornflakes í aðra
- Hrærið eggjunum saman ásamt 2 tsk salt, 2 tsk cayenne pipar og 2 tsk þurrkað Timian í þriðju skálina
- Hitið ofninn á 210 C°blástur
- Skerið svo kjúklinginn í minni bita, eins og langa gúllasbita
- Byrjið á að velta kjúklingnum fyrst upp úr hveiti, svo eggi og að lokum upp úr kornflakesi
- Raðið bitunum á ofnplötu með bökunarpappa og spreyið á pappan með Cooking sprey-i
- Setjið svo í ofn í 25-30 mínútur og útbúið grænmetið og piparmajóið á meðan
- Skerið tómatana í pínulitla bita (svona eins og er í salsasósum), skerið svo kálið
- Í piparmajóið er öllu hrært saman þ.e majónesi, pipar, salti og sítrónusafa
- Þegar kjúklingurinn er tilbúin er BBQ sósu helt yfir hann á bökunarplötunni og hrært vel saman (má sleppa ef þið viljið ekki BBQ)
- Síðan er vefjan sett saman með því að smyrja á hana piparmajó, setja svo kál og tómata og að lokum kjúklinginn og rúlla upp
Súper stökkur og geggjað bragðgóður, það er bara ekki hægt að biðja um meira.
Verði ykkur að góðu
María
Endilega fylgist með mér á instagram hér
6 Athugasemdir
Mjög girnilegt 😊 hvar fást vefjurnar?
Takk fyrir það 🙂 þessar fást í Krónunni
Takk fyrir okkur í gær , ekkert smál gott !!
Það var nú lítið og takk fyrir að koma, svo gaman að fá ykkur 🙂 <3
Takk fyrir frábæra uppskrift, sló í gegn hjá þremur unglingum hér á bæ
æ en dásamlegt að heyra 🙂 Mín er sko ánægjan <3