Ó guð hvað þessir Donuts eru góðir !! Og hver hefði trúað því að það væri svona auðvelt að gera alvöru glaced Donuts heima.
Þessir eru alveg eins og úr Bakaríi nema hér kostar stykkið ekki um 300 kr heldur frekar nær 30 kr. Fyrir Donuts unnendur þá er þetta svo sannarlega uppskrift fyrir ykkur.
Hér er ekkert vesen á ferðinni. Það eina sem þarf er hringlaga form og tappi af flösku, til að móta fallega dásemdarkleinuhringi. Svo þarf djúpa pönnu til steikingar.
Ekkert vesen, bara skemmtilegheit og smá dash af þolinmæði. Deigið þarf 1 klst til að hefast og svo aðrar 20 mínútur til að hefa mótaða kleinuhringina. Restin er peace of cake eða kannski frekar peace of donut.
Ekki vera hrædd við að steikja þá heima, það er engin hætta á ferðum ef farið er rétt að. Heimilið mun ekki anga í brælu, því lofa ég, enda tekur örstuttan tíma að steikja þá.
Kleinuhringirnir eru dásamlega mjúkir og loftkenndir inn í, og fisléttir eins og fjöður. Alveg nákvæmlega eins og þeir eiga að vera.
Fyrir þá sem vilja frekar hafa súkkukaðiglassúr þá er það ofurlítið mál. Hægt er að setja í raun hvað sem hugurinn girnist á þá. Nutella, hvítt brætt súkkulaði eða bara hvað sem er.
Hér hins vegar höfum við þá með þunnum sykurgljáa……umm namm
Ég veit að færslan er löng en þetta er samt afar einfalt. Trúið mér þetta er svo skemmtilegt dúllerí með krökkunum. Krakkarnir mínir fengu að vera með allt ferlið og mikið var það gaman hjá okkur
Hráefni
Í kleinuhringina þarf:
- 520 gr hveiti
- 140 ml (145 gr) volg mjólk (ekki hærra hitastig en 38 C°, ég nota kjöthitamæli þegar ég mæli, en annars er það bara ilvolgt)
- 90 ml volgt vatn
- 50 gr sykur
- 1 tsk borðsalt
- 25 gr pressuger (ath alltaf geymt í kæli í verslunum)
- 1 egg
- 2 tsk vanilluextract (má líka nota vanilludropa)
- 50 gr mjúkt Ljóma smjörlíki
- 1 líter af bragðlausri steikingarolíu (best er Canola olía ef þið finnið hana eða grænmetisolía) Alls ekki nota sólblómaolíu eða steikingarfeiti (palmin) eins og notað er í kleinur !!
Glassúr uppskrift:
- 250 gr flórsykur
- 75 gr brætt smjör eða smjörvi
- 3-5 msk nýmjólk (fer eftir hversu þykkan þið viljið hafa hann ég vil hann þunnan)
- 1 tsk vanilluextract eða dropar
Aðferð
- Hér finnst mér best að hnoða í höndunum og líka svo miklu skemmtilegra
- Byrjið á að setja hveiti og salt í skál
- Búið svo til holu í miðjunni á hveitinu
- Setjið í holuna, mjólkina, vatnið, sykurinn og gerið
- Hrærið því svo vel saman í holunni, en ekki láta hveitið blandast við vökvann
- Bætið næst vanillunni og egginu út í vökvann í holunni. Best er að vera búin að hræra eggið upp fyrst
- Hrærið aftur vel saman vökvanum án þess að blandist við hveitið
- Þegar allur vökvinn er vel hrærður saman má hræra öllu saman við hveitið með sleif þar til þið getið ekki hrært lengur
- Takið þá mjúkann Smjörvann og bætið honum við deigið og byrjið að hnoða annað hvort í höndunum eða í hrærivél með króknum
- Ekki setja neitt meira hveiti saman við, hnoðið bara alveg þar til hættir að festast á puttana og deigið verður silkimjúkt. Ef þið gerið í hrærivél þá hnoða þar til deigið hættir að frestast á krókinn og puttana
- Ef deigið heldur áfram að vera klístrað setjið þá oggu pínupons hveiti...bara pínu pons og hnoðið áfram
- Mótið fallega glansandi kúlu úr deiginu og látið í skál með stykki yfir
- Mér finnst best að setja degið til hefingar á hlýjan stað, eins og í gluggakistu með miðstöðvarofn undir. Eða á gólfið ef þið eruð með gólfhita.
- Látið hefast í 1 klst (mega líka vera 2 klst ef þið viljið skreppa út á meðan)
- Nú byrjar það allra skemmtilegasta, að búa til kleinuhringina (sjáið myndir af því hér að neðan skoðið vel)
- Áður er samt mjög gott að klippa út ferninga úr smjörpappa til að leggja hvern og einn kleinuhring ofan á
- Setjið ögn af hveiti á bretti eða borð og leggið fallegu deigkúluna varlega ofan á
- Farið ofurvarlega með deigið því við viljum halda loftinu í því
- Byrjið að fletja það mjög varlega út með kökukefli. Ekki hjakkast á því fram og til baka, heldur bara fara eins varlega yfir og mögulegt er. þar til deigið er orðið að 1-2 cm þykkum ferning
- Þá má byrja að skera út hringi með hringskera eða glasi (Ég var með 7,5 cm þvermál)
- Svo nota ég kóktappa til að gera litla gatið í miðjuna... ohhhh þetta er svo skemmtilegt !!
- Gerið þetta svo líka við deigið sem er eftir, fletjið það út aftur og skerið þar til allt deig er búið
- Takið svo hvern og einn kleinuhring og leggjið ofan á smjörpappaferning, því það auðveldar svo við steikinguna á eftir
- Leggið stykki yfir kleinuhringina og leyfið þeim að hefast í 20 mínútur
- Nú er að hita 1 líterinn af olíunni á djúpri pönnu eða potti. Ég notaði Wok pönnu með þykkum botni
- Gott er að setja smá deig út í olíuna til að meta hvort hún sé orðin nógu heit
- Þegar olían er til þá eru settir 2-3 kleinuhringir út á pönnuna með pappanum undir
- Takið svo strax smjörpappann varlega undan með töng og steikið þar til orðnir ljósgylltir öðrum meginn
- Snúið svo við og steikið á hinni hliðinni
- Leggið þá svo á eldhúspappír þegar þeir koma úr olíunni til að aukaolían fari í pappann en ekki inn í Kleinuhringinn
Gljái:
- Bræðið smjörið
- Hrærið svo flórsykri og vanillu saman við
- Bætið mjólk út í eftir því hversu þykkan þið viljið hafa hann
Punktar
Ég veit að þetta virðist við fyrstu sýn afar yfirgripsmikið og flókið en þannig er það alls ekki, þetta er mjög einfalt að gera. Passið extra vel hvaða olíu þið notið en canola eða grænmetis en langbest upp á að það komi ekki aukabragð af kelinuhringjunum en t.d er sólblómaolía of bragðmikil í þetta. Hér skiptir mestu að leyfa deiginu að hefast vel því þá verða kleinuhringirnir fisléttir og mjúkir. Það má alveg nota vanilludropa í stað vanilluextract. Athugið að pressuger er alltaf geymt í kæli en ekki hjá bökunarvörum, og ef þið finnið pressuger hvergi getið þið notað 2 tsk þurrger í staðinn en ég mæli mest með að nota pressugerið samt. Passið einnig að steikja kleinuhringina ekki of mikið en þeir eiga að vera frekar ljósir á litinn.
Góða skemmtun
María
2 Athugasemdir
Sæl
Takk fyrir frábært blogg, skoða það reglulega 🙂 Mig langar að gera þessa kleinuhringi fyrir barnaafmæli. Hefur þú prófað að frysta þá?
kv.
Ásrún
Sæl Ásrún
Það er sko lítið að þakka og gleður mig að heyra að þú kikir inn reglulega 🙂
Já ég prófaði að frysta þá síðast þegar ég gerði þá en þá gerði ég það með glacinu á sem verður svona hálfblautt þegar það afþiðnar.
Held að ef þú frystir þá og setur svo glassúr á þá þegar þeir eru afþýddir þá ættu þeir að vera bara í fínasta lagi
kær kv María