-Samstarf-
Rugl gott, einfalt og enga stund að gera. Er það ekki akkurat þannig sem við viljum hafa það ?
Að minnsta kosti vil ég það enda ekki leiðinlegt að gera eitthvað eins einfalt en sem bragðast svona vel.
Ef þú elskar Walkers karamellur og lakkrís muntu elska þetta tríó því hér eru walkers karamellur með lakkrísbragði í aðalhlutverki.
Hvað er betra en súkkulaði og lakkrís saman ? Við íslendingar alla vega getum státað okkur af að vera lakkrísþjóð.
Hér er þó ekki yfirþyrmandi lakkrísbragð heldur er fullkomið jafnvægi milli súkkulaðis og lakkrís eiginlega bara fullkomið.
Hráefni
Klessukaka
- 70 gr mjúkt smjör
- 150 gr púðursykur
- 1 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 115 gr hveiti
- 3 msk kakó
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 100 gr mjólkursúkkulaðidropar
- 100 gr hvítir súkkulaðidropar
- 10 stk walkers karamellur með lakkrísbragði skornar í 4-6 bita
Ís
- 150 gr sykur
- 8 stk eggjarauður eða 2 dl
- 1/2 líter rjómi
- 1 tsk vanilludropar
Lakkríssósa
- 150 gr walkers karamellur með lakkrísbragði
- 100 gr suðusúkkulaði
- 1 1/2 dl rjómi
- Klípa af grófu salti
Aðferð
Klessukaka
- Kveikið á ofninum á 180 C°blástur
- Setjið mjúkt smjör, púðursykur, egg og vanilludropa í hrærivélarskál og hrærið saman með hræraranum þar til er orðið létt og ljóst
- Setjið svo, hveiti, kakó, matarsóda og salt og hrærið áfram þar til er komið klístrað deig
- Skerið karamellurnar niður í 4-6 bita og bætið út í ásamt súkkulaðidropunum en best er að hræra svo með höndunum eða örstutt í hrærivél því karamellurnar eru harðar
- Bakið í 15-20 mínútur en ég hafði mína í akkurat 18 mín
- Best er að bera kökuna fram heita beint úr ofninum með ísnum og heitri sósu
Ís
- Þeytið rjómann og leggið til hliðar
- Þeytið næst eggjarauður, sykur og vanilludropa saman þar til er orðið fallega froðukennt og mjúkt og nánast eins og frauð
- Blandið svo eggjarauðufrauðinu saman við rjóman ofurvarlega með sleif þar til er vel blandað saman
- Setjið að lokum í mót, helst sílíkonmót, og frystið lágmark 8 tíma
Lakkríssósa
- Setjið allt saman í pott yfir meðalhita og leyfið að hitna
- Þegar þið sjáið að súkkulaði er byrjað að bráðna hrærið þá vel í pottinum allan tímann
- Sósan er til þegar karamellur og súkkulaði er alveg bráðnað saman við rjómann og orðið silkimjúkt og slétt
- Berið fram sósuna heita ásamt heitri kökunni og ísnum
Verði ykkur að góðu
María