Dásamleg kjúklingbaka sem vermir líkama og sál

höf: maria

Þessa dagana er mér alltaf kalt. Það er bara eitthvað sem fylgir haustinu. Því finnst mér heitur matur eins og góðar súpur og bökur tilvalin matur til að verma mér á, á köldum haustdögum.

Þessi baka er ekta fyrir haustið. Hún er dásamlega bragðgóð og vermir líkama og sál. Eins og kaninn myndi segja á góðri ensku, þá er hún ekta Soul food eða sálarfæða.

Stökk skorpa með dásamlega mjúkri og bragðmikillri fyllingu sem hlýjar og vermir og allir í fjölskyldunni elska. Hvað er hægt að biðja um meira ?

Bökuna er mjög einfalt að gera, en í hana nota ég tilbúið smjördeig sem ég kaupi í næstu verslun. Fyllinguna er síðan afar auðvelt að gera og ætti því hver sem er að geta gert þessa böku.

Dásamleg kjúklingbaka sem vermir líkama og sál

Þessa dagana er mér alltaf kalt. Það er bara eitthvað sem fylgir haustinu. Því finnst mér heitur matur eins og góðar súpur… Matur Dásamleg kjúklingbaka sem vermir líkama og sál European Prenta
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

  • 1 pakka af smjördeigi (ég keypti mitt í frystinum í Bónus)
  • 3 kjúklingabringur
  • 2 gulrætur
  • 1 stilkill af sellerí
  • 50 gr ósaltað smjör
  • 1/2 laukur
  • 1 tsk marin hvítlaukur
  • 1/2 bolli hveiti
  • 1 tsk salt
  • 1/2 tsk svartur pipar
  • 1/2 tsk þurrkað timían
  • 1 3/4 bolli kjúklingasoð (1 teningur fer í 400 ml soðið vatn, nota svo 1 3/4 bolla af því)
  • 1 peli kaffirjómi
  • 1 bolli frosnar grænar baunir
  • 1 egg

Aðferð

  1. Byrjið á að afþýða smjördeigið í tíma áður en bakan er gerð
  2. Hitið svo ofninn á blástri við 210-220 C°
  3. Skerið næst, gulrætur í þunnar skífur og gerið það sama við selleríið.
  4. Skerið laukinn smátt og merjið hvítlaukinn (c.a 2-3) hvílauksrif
  5. Skerið svo bringurnar í gúllasbita
  6. Setjið í stóran pott bringurnar, selllerí og gulrætur og hellið vatni yfir og látið það ná yfir allt
  7. Sjóðið saman í 12 mínútur. Takið svo úr pottinum og setjið til hliðar.
  8. Takið 400 ml af vatninu sem var í pottinum og hellið restinni. Setjið einn kjúklingatening út í vatnið og hrærið vel
  9. Bræðið svo smjör í pottinum og setjið lauk og hvítlauk út á. Hafið stillt á lágan hita svo laukarnir sjóði í smjörinu en verði ekki brúnir
  10. Setjið svo hveitið út á og hrærið vel í, í c.a eina mínútu svo hveitibragðið hverfi
  11. Setjið næst salt, pipar, tímían, kjúklingasoðið og kaffírjómann út á og hrærið vel í meðan þykknar. Sósan á að vera vel þykk
  12. Bætið svo kjúklingnum, gulrótunum og selleríinu út á og hrærið saman. Slökkvið svo undir pottinum meðan deigið er flatt út
  13. Í pakkanum eru 5 skífur af deigi, notið 2,5 í skorpuna undir og 2,5 í skorpuna ofan á
  14. Smyrjið form að innan með smjöri og sáldrið smá hveiti yfir
  15. Dreifið hveiti á borðið og fletjið smjördeigið út þannig það sé frekar þunnt
  16. Setjið svo inn í formið og skerið burt allt umframdeig sem nær yfir kantana á forminu. Passið að láta það ná alveg upp brúnirnar
  17. Hellið næst fyllingunni í formið með deiginu.Hellið frosnu grænu baununum yfir og blandið létt saman með skeið
  18. Fletjið svo alveg eins og áðan út deig og leggjið ofan á eins og sæng. Skerið aftur allt umramdeig burt og látið brúnirnar á deiginu undir og ofan á kyssast og klemmið það saman með puttunum til að loka því
  19. Penslið með eggi yfir og skerið nokkrar ræmur í mitt deigið, til að hleypa rakanum út og skorpan nái að verða stökk.
  20. Bakið í ofni við 210-220 C°í c.a 35-40 mínútur eða þar til bakan er orðin gyllinbrún og stökk.

 

Verði ykkur að góðu

María 

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here