-Samstarf-
Ég og börnin mín elskum grjónagraut en hann er kannski ekki alltaf hollasti valkosturinn, uppfullur af hvítum grjónum og hvítum sykri.

Hér hins vegar gerði ég grjónagraut sem er hollari kostur, með grófum grjónum, hrásykri og besta kanil sem ég hef smakkað.

Hvít grjón eru í raun jafn kolvetnarík og sykur en um leið og grjónin eru orðin gróf eru þau orðin töluvert næringarríkari af bæði steinefni og trefjum og hækka ekki blóðsykur eins og hvítur sykur og hvít grjón gera.

Sama má segja um hrásykur versus hvítan sykur en þó hann hækki blóðsykur jafnt og hvítur sykur er að finna ögn af steinefnum í hrásykri og hann er ekki bleiktur eins og sá hvíti.

Það sem margir vita ekki er að kanill getur safnast fyrir í lifrinni þá sérstaklega í börnum, þá er ég að tala um hinn venjulega kanil, en hann inniheldur mikið magn af kúmaríni sem getur valdið lifraskaða.

Hins vegar er til kanill sem ég nota hér og ég er alfarið farin að nota í allt í stað hefðbundins kanils, en hann heitir Ceylon kanill, hann inniheldur mjög lítið af Kúmaríni og því alveg óskaðlegur börnum.

Ceylon kanillinn frá MUNA er eitthvað annað góður, ég er að segja ykkur það, svo sæt og dásamleg lykt af honum og stundum nota ég hann meira að segja beint út í kaffið mitt.

Ég held að það sé alveg óhætt að segja að hér höfum við uppskrift af grjónagraut sem þið getið gefið börnunum ykkar án þess að óttast eiturefni og óhollustu.

Það sem meira er, er að hann er líka mjög góður kaldur og þess vegna hægt að setja hann í skálar með kanilsykur yfir og svo inn í ísskáp og taka svo út sem eftirrétt.

Ef þið notið rúsínur myndi ég alltaf velja þær lífrænt ræktaðar því ég hef heyrt að notuð sé bennisteinssýra í þeim sem eru ekki lífrant ræktaðar.

Rúsínurnar frá MUNA eru lífrænt ræktaðar eins og allt annað frá þeim og innihalda því enga brennisteinssýru auk þess að þær eru virkilega góðar líka.


Hráefni
Fyrsta stig
- 2 dl gróf grjón frá MUNA
- 4 dl vatn
- 1 tsk salt
Annað stig
- 5 dl nýmjólk
- 1 dl rjómi
- 2 tsk vanilludropar
- 1 stk kanilstöng
- 2 msk MUNA hrásykur
Ofan á
- Gerið kanilsykur úr MUNA hrásykri og Ceylon kanil frá MUNA
- Rúsínur frá MUNA ef þið notið rúsínur út á grautinn
Aðferð
- Byrjið á að sjóða grjónin í vatninu með saltinu í 45 mín
- Þegar grjónin eru soðin og allt vatn gufað upp bætið þá 5 dl af mjólk og 1 dl af rjóma út í og hrærið vel
- Setjið vanilludropa, hrásykur og kanilstöngina með út í pottinn og setjið hlemm ofan á
- Látið ná suðu og lækkið þá hitann, sjóðið við vægan hita í 35-45 mínútúr í viðbót og hrærið reglulega í svo brenni ekki við botninn
- Þegar suðutíminn er liðinn bætið þá 2-3 dl af nýmjólk út í og hrærið
- Setjið í skálar og stráið rúsínum og kanilsykri yfir
- Ég hef alltaf lyfrapylsu með grautnum en krakkarnir mínir elska það

Verði ykkur að góðu
María
2 Athugasemdir
Eg set aldrei sykur I Grjonagraut.Enn borða hann með kanilsykri.Grjón eru full af Arsenic,Svo ég skola vel,syð upp á honum,helli vatninu og sýð,þar til vatnið er búið,síðan bæti ég við mjólk og rjóma,syð ca í 1 klukkutíma,við hægan eld.Þegar ég var krakki át en Grjónagraut oft í viku,mitt uppáhald.Hef alltaf heyrt að kanill væri hollur.
Já það er rétt að grjón eru full af arsenik og því ekki ráðlagt börnum t.d oftr en 4x í viku, en já þetta með kanilin er eitthvað sem ekki margir vita 🙂