-Samstarf-
Hér er afar einfalt en svo ofsalega gott fiski taco að þið eiginlega verðið að prófa.
Það þarf ekki mikið af hráefnum en hér geri ég sérstaka kryddblöndu á fiskinn sem er samansett úr kryddum sem flestir eiga til inní skáp.
Ég lofa að þetta er svo einfalt að gera og tekur ekki nema stutta stund og eiginlega eina sem maður þarf að hafa eitthvað smá fyrir er að steikja fiskinn.
Hér er sósan aðalmálið en hún gerir þetta taco alveg sérstaklega Gourmet gott og spicy. Uppistaðan í henni er avókadó, majónes og jalapenjó Tabasco sósa.
Það kom mér virkilega á óvart að matvanda dóttir mín alveg elskaði þetta taco og sagði það vera veitingarstaðagæði nema bara betra.
Ég á allavega klárlega eftir að gera þessa uppskrift aftur og mæli með að þið prófið ! Það mun koma ykkur á óvart hversu gott er að hafa fisk í taco.
Auk þess er þetta taco afar ferskt en þar leikur limebörkurinn sterkt hlutverk en hann raspa ég út í salatið.
Hráefni
Hrásalatið
- 90 gr smátt skorið kínakál
- 100 gr smátt skorið rauðkál
- 140 gr smátt skornir smátómatar
- 1 smátt skorið avókadó
- 70 gr smátt skorinn rauðlaukur
- 2 tsk sykur
- Raspaður börkur af einu lime
- 4 tsk nýkreistur limesafi
Jalapenjó-avocado majó
- 1-2 stk marin hvítlauksrif
- 1 dl majónes (ég notaði Heinz en mér finnst það besta majónesið í svona sósur)
- 1/2 þroskað avókadó
- 25 dropar Tabasco sósa með jalapenjóbragði
Kryddhjúpur á fiskinn
- 1 tsk hvítlauksduft (garlic powder, ath ekki hvítlaukssalt)
- 1 tsk laukduft (onion powder)
- 1,5 tsk fínt borðsalt (ath hafið það fínt salt ekki gróft)
- 1 tsk cumin (ekki Kúmen eins og í kringlum)
- 1 tsk sykur
- 1 tsk paprikuduft
- 1 tsk timian þurrkað
- 2 egg
- 1 dl hveiti eða jafnvel ögn meira
Annað
- 350 gr hvítur fiskur en ég notaði ýsu
- 1-2 pakkar mjúkar taco kökur en mér finnst Mission street tacos vera þær allra bestu
- Sriracha sósa en mér finnst frá merkinu Tabasco vera best
- 1 líter af grænmetisolíu eða sólblómaolíu eða canolaolíu
Aðferð
Hrásalatið
- Skerið kálið í mjóar lengjur og restina af grænmetinu mjög smátt og setjið saman í eina skál
- Raspið lime börkinn út á og bætið við sykrinum og limesafanum
- hrærið öllu vel saman
Jalapenjó-avocado majó
- Merjið hvítlauk út í blandara og bætið restinni af innihaldi sósunnar út í
- Blandið í blandara þar til verður að silkimjúkri kjekkjalausri sósu
Kryddhjúpur á fiskinn
- Blandið öllum kryddunum saman í litla skál
- Brjótið næst 2 egg á djúpan disk og bætið kryddunum útí og hrærið vel saman með gaffli eða písk þar til kryddið er vel blandað saman við egginn
- Setjið svo hveiti á annan disk
- Þerrið fiskinn á eldhúspappír svo mesti rakinn fari úr honum og skerið hann svo í litla ferninga á stærð við stóran tening
- Hitið alla olíuna á pönnu og veltið fiskinum upp úr hveiti og hristið allt umframhveiti af
- Veltið svo beint upp úr egginu og setjið út í heita olíuna þar til bitarnir verða fallega gylltir
- Setjið svo bitana á disk með elhúspappír á til að umframolía fari af
- Svo er bara að setja salat á taco köku, fiskinn ofan á og sósurnar yfir og njóta
Verði ykkur að góðu
María