Hér er uppskrift af dásamlegu kökunni sem ég gaf í Kökublaði Vikunnar í nóvember síðastliðnum en þessi kaka er alveg svaklega góð.
Hugmyndina af henni fékk ég í Ameríku í sumar, en þar sá ég bakarí með svo skemmtilega öðruvísi formkökum sem ég hreyfst af.
Bakaríið heitir Nothing but Bundt cake‘s, og ákvað ég að reyna leika svona köku eftir enda afar einfalt, bara henda í formköku og skreyta hana eins og þau gera með smjörkremi og fallegu blómi.
Þessa köku ættu að allir að geta gert en ég ákvað að gera appelsínuformköku með súkkulaðibitum og hvítsúkkulaðismjörkremi.
Ég elska appelsínukeim í kökum og tala nú ekki um að hafa súkkulaði með. Bæði fullorðna fólkinu og krökkunum á heimilinu fannst kakan svo góð að hún kláraðist samstundis.
Passið ykkur þó að hræra ekki of mikið í kökunni svo hún verði ekki seig en galdurinn er að hræra sem minnst svo hún verði létt og loftkennd en þannig er hún best.
Mín ráð til ykkar er að fara bara alveg 100 % eftir uppskriftinni og eiga stórt og gott hringform með gati í miðjunni til að setja hana í.
Ef þið nennið ekki að setja kremið á á sama hátt og ég gerði má líka bara smyrja því á kökuna og bera þannig fram, það kemur akkurat ekkert niður á bragðinu.
Ef þið viljið fylgjast með mér á Instagram farið þá inn hér og ýtið á Follow !
Hráefni
Formkakan
- 300 gr hveiti
- 1 tsk fínt borðsalt
- ½ tsk matarsódi
- ½ tsk lyftiduft
- 350 gr sykur
- 225 gr mjúkt smjör
- Raspaður börkur af tveimur appelsínum
- Raspaður börkur af 2 sítrónum
- Nýkreystur appelsínusafi úr tveimur appelsínum um 60 ml
- Nýkreystur sítrónusafi úr tveimur sítrónum um 1 msk
- 1 tsk vanilludropar
- 6 stór egg við stofuhita
- 225 gr grísk jógúrt
- 1 dl dökkir súkkulaðidropar
Hvítsúkkulaðikrem
- 250 gr ljóma smjörlíki (nota ljóma því það verður mun sléttara kremið og hvítara á lit)
- 420 gr flórsykur
- 125 gr hvítir Candy Buttons hvítsúkkulaðilíki (fæst í Hagkaup m.a.)
- 1 tsk vanillusykur (vanilludropar gera kremið gulara, þess vegna betra að nota vanillusykur)
- 3 msk rjómi
Aðferð
Formkakan
- Hitið ofninn á 165 °C -170 °C blástur eða 175 °C -180 °C ef þið hafið ekki blástursofn
- Smyrjið stórt formkökuhringform sem er með gati í miðjunni og smyrjið það með ríflegu af smjöri og látið svo smá hveiti yfir og hristið umframhveiti af, þannig losnar kakan vel úr forminu eftir bakstur
- Hærið saman hveiti, salti, matarsóda og lyftidufti með skeið í meðalstórri skál
- Setjið svo sykur í aðra skál og raspið börkinn út í og blandið saman með fingrunum þannig að úr verður eins og blautur sandur
- Setjið svo í hrærivél mjúkt smjör (verður að vera vel mjúkt) og sykurinn með berkinum og hafið t-stykkið á ekki þeytarann og hrærið saman á miklum hraða þar til verður loftkennt í eins og 5 mínútur
- Bætið svo út í appelsínu og sítrónusafanum ásamt vanilludropunum og hrærið þar til er vel blandað saman
- Lækkið hraðan á meðalhraða og bætið við einu eggi í einu þar til hvert egg er vel blandað saman við
- Lækkið nú hraðann á lægsta og bætið við hveitinu saman við í þrennu lagi og svo gríska júgurtinu í tvennu lagi og passið að hræra bara rétt svo saman svo kakan verði ekki seig
- Bætið svo súkkulaðidropum út í og hrærið varlega saman með sleikju en ekki í hrærivélinni
- Hellið nú í formið og bakið í miðjum ofninum í 55 - 65 mínútur en gott er að stinga prjón í kökuna og ef hann kemur hreinn upp úr er kakan til, ef kemur deig á hann er gott að bæta við 3 mínútum í senn þar til prjónninn kemur hreinn upp þegar stungið er í kökuna.
- Kælið næst kökuna í 15 mínútur og hvolfið henni þá á rekka og látið kólna alveg áður en kremið er sett á
Hvítsúkkulaðikrem
- Setjið mjúkt Ljómasmjörlíki í hrærivélarskál og hrærið í smá stund svo mýkist enn meir og bætið þá flórsykrinum smátt saman við ásamt vanillusykrinum og hrærið þar til er orðið lofkennt, mjúkt og kekkjalaust
- Bræðið Candy Buttons hnappana í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði og setjið beint út í kremið ásamt rjómanum og hrærið áfram saman þar til er orðið lofkennt og fallega silkimjúkt hvítt krem
- Takið svo sprautupoka og klippið lítið gat á hann og setjið kremið í hann. Sprautið kreminu á kökuna í sama munstri og þið sjáið á myndinni af kökunni
- Ég setti síðan lítið glas í gatið á miðjunni og setti blautan eldhúspappa á stilkinn á blóminu og setti ofan í glasið með smá vatni í
- Hægt er að nota hvaða blóm sem þið viljið
Verði ykkur að góðu
María
2 Athugasemdir
Er einhver annar búinn að prófa þessa uppskrift? Ég gerði hana í fyrradag og þetta var eitt mesta klúður sem ég hef lent í. Fannst ýmislegt skrýtið í ferlinu, en ákvað að fylgja því samt. Ég endaði með að baka hana allt of lengi því prjónninn kom aldrei hreinn út og hún var eins og ommiletta. allur þessi vökvi, safi úr tveimur appelsínum og tveimur sítrónum og öll þessi egg. Þetta var hræðilegt og verulega vont. Getur verið að það sé einhver villa í uppskriftinni. Kremið var reyndar mjög flott og það endaði með því að ég bakaði súkkulaðiköku í hringforminu og setti kremið á hana svona með sprautupoka eins og þú gerir.
sæl Ásta
Takk fyrir skilaboðin,
Mér þykir ótrúlega leitt að kakan hafi mislukkast svona allsvakalega. Þar sem ég vil auðvitað að uppskriftirnar mínar séu pottþéttar fór ég yfir uppskriftina og aðferðina og sá ekki neitt sem gæti verið vitlaust í uppskriftinni.
Ég ákvað því að baka kökuna aftur og fara 100 % eftir uppskrift og aðferð eins og gefið er upp.
Ég ákvað hins vegar að notast við annars konar hringform með gati í miðjunni, því það sem ég notaði síðast er keypt í Ameríku og er ögn víðara og grynnra. Núna hins vega notaðist ég við form sem fæst víða hér í verlsunum á Íslandi og er það minna í ummáli og dýpra og því þykkara magn af deigi sem fer í það.
Ég notaði 6 eggin eins og gefið er upp í uppskfrift og voru þau mjög stór sum með tveimur eggjarauðum inn í. Þegar ég skrifaði upp uppskriftina mældist safi úr 2 appelsínum rúmlega ½ dl en þegar ég bakaði hana í gær var safi úr 2 appelsínum nær 150 ml svo það er greinilega misjafnt hversu mikinn safa maður fær úr appelsínum og sítrónum…… en ég fékk líka töluvert meira magn úr báðum sítrónunum í þetta skiptið en síðast. Engu að síður notaði ég allann safann bara til að sjá hvort það gæti hafa haft þessi áhrif, og var degið mun blautara í þetta skiptið en síðast.
Þrátt fyrir mun dýpra form og að deigið var blautara í þetta skiptið en síðast þá lukkaðist kakan engu að síður fullkomlega, það eina sem ég gerði var að bæta við 10 mínútum við tímann sem kakan var í ofninum en bakaði hana á þeim hita sem gefið var upp eða 165 °C með blæstri.
Ég veit því ekki hvað gæti hafa farið úrskeiðis en eins og ég sagði þá fylgdi ég ferlinu eins og það er skrifað upp alveg upp á 100 fyrir utan þessar auka 10 mínútur sem kakan var lengur inni, en mér sýnist þú hafa bakað hana eins og þú segir lengi svo ég býst því við að þú hafir bætt við tímann sjálf 🙂
Miðað við lýsinguna hjá þér að hún hafi verið eins og ommeletta þá hljómar það eins og mögulega hafi vantað hveiti en getur verið að það hafi kannski gleymst að setja það ??
Ég sendi þér með myndir af kökunni sem ég bakaði í gær, en ég eiginlega get ekki sagt til um miðað við þetta hvað gæti hafa farið úrskeiðis annað en það gæti mögulega hafa vantað hveitið……
Takk fyrir ábendinguna ég tek öllum ábendingum fagnandi enda eins og ég segi vil ég að uppskriftir séu pottþéttar hjá mér.
Ég hef bætt við baksturstímann og segi núna 55-65 mínútur því það fer auðvitað eftir forminu líka sem kakan er bökuð í hversu langan tíma hún þarf. Einnig setti ég fyrir aftan safa út tveimur appelsínum og sítrónum hversu c.a margir ml það á að nota, en það virðist ekki hafa komið að sök hjá mér að safinn var 3x meiri núna en síðast en ákvað samt að bæta því við engu að síður.
Myndir af seinni kökunni má finna hér að neðan í viðhengjum
Kær kveðja,
María Gomez
328944454_737599601483116_5418456458186257582_n
328930380_924388715237414_4911821459539353908_n
328683796_475887597899232_8135301805389175542_n
327533222_774773737685813_5892050193017691278_n