-samstarf-
Cacio a pepe er rammítalskur spagettíréttur sem er venjulega gerður með olíu, pecorino osti og pipar.
Þessa útgáfu eða svipaðri þessari sá ég hins vegar á Tik Tok og fannst hún bara meira djúsí og ákvað að gera mína eigin útgáfu af henni.
Ég veit að grjótharðir ítalir myndu kannski móðgast við þessa uppskrift en hey hver segir að maður megi ekki leika sér í eldhúsinu.
Ég allavega var mjög ánægð með útkomuna og hinir heimilismennirnir líka, en mér finnst smjörið alveg gera rosa mikið fyrir bragðið.
Þessi réttur er afar einfaldur og tekur enga stund að gera. Ég mæli með því að hafa hvítlauksbrauð og ferskt salat með honum til að fá smá ferskleika með smjörbragðinu.
Ég mæli með að þið prófið en þessi er alveg svona ekta korter í kvöldmat réttur sem maður bara hendir í á mettíma.
.
Hráefni
- 300 gr spagettí frá De Cecco finnst mér best
- 150 gr mjúkt smjör
- 100 gr rifinn pecorino ostur
- fullt af nýmöluðum svörtum pipar
Aðferð
- Sjóðið spagettí eftir leiðbeiningum á pakka en munið að hafa vatnið vel salt, nánast eins og sjóvatn
- Rífið niður pecorino ostinn í rifjárni og hrærið út í mjúkt smjörið ásamt fullt af svörtum pipar, eftir smekk
- Setjið smjörið í skál og setjið á borðið ásamt sjóðandi heitu spagettí
- Best er að bera fram spagettíið sjóðandi heitt og fá sér svo góða slettu af piparostasmjörinu út á og láta það bráðna yfir spagettíið, setja svo smá auka af ólifuolíu og enn meiri rifinn pecorino ost yfir
- Ég mæli með því að hafa hvítlauksbrauð og ferskt salat með til að fá smá ferskleika með smjörbragðinu
Verði ykkur að góðu
María