-Samstarf-
Þessi fiskréttur er afar góður ef þið eruð að leita eftir tilbreytingu frá hefðbundnum steiktum fiski.
Rétturinn er í senn bragðmikill og auðveldur að gera. En galdurinn hér er að marínera fiskinn í Caj P hvítlauks grillolíu.
Því lengur því betra, en ég hef hann stundum alveg yfir nótt eða frá morgni til kvöldmats í maríneringunni. Best er að leyfa fiskinum að marínerast allavega í 2-4 tíma.
Með því móti fær maður sem mest bragð inn í fiskinn og því er eftirleikurinn auðveldur.
Bara að velta honum upp úr maizena mjöli eða kartöflumjöli og steikja í góðri olíu. Svo er brætt hvítlaukssmjörið það sem setur punktinn yfir i-ið.
Mér finnst best að nota ýsu eða þorskhnakka en hvaða hvíti fiskur sem er kemur til greina.
Auðvelt og gott og mæli ég með að þú prófir.
Hráefni
Marínering
- 1-2 dl Caj P BBQ olía með hvítlauk
- 1 msk sojasósa
- 3-4 marin hvítlauksrif
- 1 tsk sítrónusafi
- 1 msk hunang
- Klípa af grófu salti
- pipar
- smá chiliflögur (val ef þið viljið hafa fiskinn sterkann)
- 500 gr hvítur fiskur eins og ýsa eða þorskur en ég notaði þorskhnakka
Bráðið hvítlaukssmjör
- 80 gr smjör
- 3 marin hvítlauksrif
- 1/2 msk nýkreystur sítrónusafi
- 2 tsk þurrkuð steinselja
Annað
- 1 dl maizena mjöl eða kartöflumjöl og meira ef þarf
- 4 msk góð matarolía en það er líka gott að nota 3 msk matarolíu og 1 msk sesamolíu
Aðferð
- Setjið Caj p grillolíuna í grunna skál og merjið hvítlauksrifin út í (hristið Caj P olíuna vel áður en sett er í skálina)
- Blandið svo restinni af innihaldsefnum úr maríneringunni saman við og hrærið vel saman
- Leggjið fiskinn á eldhúspappír til að ná sem mestum raka úr honum og skerið hann svo í langa mjóa bita
- Setjið fiskbitana út í maríneringuna helst í 2-4 klst í ísskáp, best ef hægt er yfir nótt eða frá morgni að kvöldmatartíma
- Þegar steikja á fiskinn setjið þá maizena eða kartöflumjöl á matardisk
- Hitið svo olíu á pönnu og veltið einum fiskbita í einu upp úr mjölinu (passa að láta sem mest af maríneringunni leka af fiskinum) og setjið svo beint út í heita olíuna
- Steikjið fiskinn þar til hann hefur fengið á sig fallegan appelsínugylltan lit og setjið svo á disk með eldhúspappír á til að umfram olía fari í pappann
- Meðan fiskurin er steiktur er gott að gera hvítlaukssmjörið til á meðan
- Setjið smjörið í pott og bræðið en ekki sjóða, slökkvið undir þegar smjörið hefur bráðnað
- Merjið næst hvítlauksrifin út í smjörið og setjið restina af hráefnum saman við og hrærið vel saman, setjið í skál og leggjið til hliðar
- Þegar fiskurinn er til og kominn á disk er best að hella hvítlaukssmjörinu yfir hann heitann og bera afganginn af smjörinu fram með réttinum
- Mér finnst best að hafa ofnbakað smælki velt upp úr olíu og salti með honum og hella hvítlaukssmjörinu yfir þær líka þegar þær eru til
Verði ykkur að góðu
María