Um mig

höf: gae

Paz er blogg sem ætlað er nautnaseggjum sem hafa gaman af því að hafa fallegt í kringum sig, borða góðan mat og njóta lífsins.

 

Á Paz má finna ýmislegt sem viðkemur innanhúshönnun og framkvæmdum, mat og menningu.

 

Ég mun gefa ykkur uppáhalds uppskriftirnar mínar úr eldhúsinu hjá ömmu Paz, ásamt öðrum uppskriftum sem ég hef annað hvort samið eða sankað að mér í gegnum tíðina.

 

Þær smakkast guðdómlega ég lofa !!!

 

Nafnið Paz er dregið af ömmu minni frá Spáni. Amma Paz var listakokkur og var alltaf fallegt í kringum hana. Hún var og er ein af mínum fyrirmyndum í lífinu og fannst mér því tilvalið að skýra bloggið mitt eftir henni.

 

Paz þýðir friður á spænsku.

Sjálf heiti ég María Gomez og er andlitið á bakvið Paz.

 

Ég er fjögurra barna móðir, menntuð í ferðamálafræði frá Háskóla Íslands. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á að fegra heimili mín og elda góðan mat. 

 

Ég hef mikinn áhuga á ljósmyndun og tek flestar mínar myndir sjálf.


Eins og nafn mitt gefur til kynna er ég hálfur Spánverji. 

 

Ég er búsett í litlu fjallaþorpi í Andalúsíu, í Sierra Nevada fjöllunum. Þar bý ég með börnunum mínum fjórum og og barnabarni.

 

Spænska lífið á vel við okkur, enda hefur spænskt líf og menning alltaf átt sérstakan stað í hjarta okkar, þar sem við eigum rætur þangað að rekja. 

Því mun spænsk menning  endurspeglast í mörgu sem ég skrifa um hér á bloggsíðuni minni, allt frá innanhússhönnun og uppskriftum og brotum úr lífinu mínu í sólinni.

 

Fyrir ykkur sem kunnið að meta fegurð, hlýleg heimili og smá sól í hversdagsleikanum þá er Paz rétti staðurinn fyrir ykkur.

 

Amma mín Paz

Með kærleik

María Gomez