Rúmlega 30 ára uppskrift af ekta skúffuköku eins og þær gerast bestar

höf: maria

Þegar ég átti afmæli sem barn man ég alltaf sérstaklega eftir nokkrum kökum sem voru hafðar í afmælinu mínu. Þessi skúffukaka var ein af þeim, nema þá var hún skreytt með smjörkremi og lakkrískonfekti.

Ég elska að gera þessa köku, því ekki bara minnir hún mig á barnæskuna, heldur er hún bara svo svakalega góð og einföld.

Það tekur litla fyrirhöfn og lítinn tíma að gera hana og oftast notast ég bara við handþeytarann. Nenni ekki að skíta út hrærivélina fyrir svona auðvelda köku.

Ofan á hana set ég svo glassúr og kókósmjöl. Umm namm hún bara getur ekki brugðist með ískaldri mjólk með klaka. Hljómar undarlega en ég mana ykkur til að prufa.

Mér finnst oft skúffukökur eiga það til að verða þurar en þessi er svo sannarlega ekki þannig. Hún er yndislega mjúk og bragðgóð og allir krakkarnir mínir elska hana.

RÚMLEGA 30 ÁRA UPPSKRIFT AF EKTA SKÚFFUKÖKU EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR

Þegar ég átti afmæli sem barn man ég alltaf sérstaklega eftir nokkrum kökum sem voru hafðar í afmælinu mínu. Þessi skúffukaka var… Bakstur Rúmlega 30 ára uppskrift af ekta skúffuköku eins og þær gerast bestar European Prenta
Nutrition facts: 200 calories 20 grams fat

Hráefni

Með þessum hlutföllum passar kakan í ferkantað form sem er 22×33 cm. Ef þið viljið baka heila ofnskúffu þá er það uppskriftin fyrir neðan

  • 285 gr. af hveiti eða 1 og 3/4 bolli 
  • 370 gr.  sykur eða 1 og 1/2 bolli 
  • 1 1/2 tsk lyftiduft
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1 tsk fínt salt
  • 35 gr bökunar kakó eða 3 kúfaðar msk 
  • 105 gr. brætt smjör eða 1/2 bolli
  • 285 gr. mjólk eða 1 bolli
  • 2 egg
  • 1 tsk vanilludropar

Í heila ofnskúffu þarf:

  • 570 gr.  hveiti eða 3 og 1/2 bolli 
  • 740 gr. sykur eða 3 bollar
  • 2 1/2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  • 2 tsk fínt salt
  • 70 gr. bökunar kakó eða 6 kúfaðar msk
  • 210 gr. brætt smjör eða 1 bolli 
  • 570 gr. mjólk eða 2 bollar
  • 4 egg
  • 2 tsk vanilludropar

Uppskrift af glassúr:

  • 6 dl flórsykur
  • 1/2 tsk salt
  • 6 msk kakó
  • 2-3 msk uppáhellt kaffi (kemur ekki kaffibragð, dýpkar bara súkkulaðibragðið)
  • 60-70 ml vatn eða meira….þurfið að meta hversu þykkan þið viljið hafa glassúrinn

Aðferð

Kakan:

  1. Blandið öllum þurrefnunum saman og hrærið þeim létt saman með handþeytaranum.
  2. Bræðið smjörið og setjið næst mjólk, egg, vanilludropa og smjör út í. Passið að setja fyrst mjólkina og eggin og svo síðast smjörið svo eggin soðni ekki í smjörinu. Þeytið svo allt saman en passið að þeyta ekki of lengi. Bara rétt þar til allt er blandað saman. Þannig verður kakan mjúk og loftkennd.
  3. Deigið er frekar þykkt en það á að líta út eins og á myndinni fyrir neðan
  4. Smyrjið næst bökunarmótið með smjöri að innan og hellið deiginu út á.
  5. Smyrjið svo deiginu jafnt yfir formið og bakið á 180 C°í 25-30 mínútur ef minni kakan er bökuð en í 30-40 mínútur ef ofnskúffan er bökuð (byrjið á 30 mínútum og bætið við ef vantar upp á) Stingið hníf í miðja kökuna áður en hún er tekin út til að meta hvort hún sé til. Ef það kemur deig á hnífinn hafið hana þá inni 3-5 mínútur lengur.

Glassúr:

  1. Hrærið öllum þurrefnunum fyrst saman með skeið og setjið síðan kaffið út í. Vatnið er sett síðast en þá er gott að setja bara smátt og smátt í einu og bæta svo meira við eftir því hversu þykkan þið viljið hafa glassúrinn.
  2. Mér finnst hann bestur þegar hann er í þykkari kantinum en samt ekki of þykkur.
  3. Þegar kakan hefur kólnað vel í forminu, hellið þá glassúrnum yfir og sléttið jafnt yfir alla kökuna. Stráið svo kókósmjöli yfir allt að lokum.
  4. Tvöfaldið uppskriftina af glassúrnum ef þið ætlið að baka í heila ofnskúffu. 

Punktar

Ef þið viljið svona þykkar sneiðar og ekta skúffuöku eins og í gamla daga mæli ég með að baka þessa í bakarofnsskúffuni. Munið svo að tvöfalda uppskrift af glassúr ef þið kjósið að baka þessa stærri. Notið gott bökunarkakó en það skiptir máli upp á að fá þetta góða djúpa súkkulaðibragð. Kakan á myndunum er aðeins dekkri en raunverulega en ekki bregða þó ykkar verði meira svona rauðbrún en þannig á hún akkurat að vera.

Þessari mæli ég með hvort sem er á virkum degi eða um helgi

Endilega fylgið mér á Instagram 

Verði ykkur að góðu

María 

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here