Herbergið hennar Ölbu með lausnum fyrir lítil rými

höf: maria

Litla snúllan hún Viktoría Alba var svo heppin að fá að eignast sitt eigið herbergi ekki nema 9 mánaða gömul. Við settum hana strax þangað inn, þegar við fluttum í húsið, og hefur hún sofið þar ein alla tíð síðan.

Persónulega finnst mér það vera mun betri kostur, fyrir foreldra og barn, að það eigi sérherbergi. Þá helst frá 6 mánaða aldri, ef þess gefst kostur. Ég hef þá reynslu að þá sofi barnið sem og foreldrarnir mun betur, en herbergið hennar Ölbu er beint á móti okkar herbergi.

Ölbu herbergi er hurð númer tvö og svo er okkar herbergi þar beint á móti

Fyrir mér geta barnaherbergi verið jafn pirrandi eins og skemmtileg. Þá meina ég að ef barnaherbergið er fullt af óskipulögðu drasli og smádóti þá fallast manni hendur að taka til í því, og barnið vill helst ekkert leika sér þar inni heldur. Manni vex í augum að stíga þangað inn og hvað þá taka til og sortera allt smádraslið sem liggur út um allt.

Fyrir mér á barnaherbergi að vera friðsæll griðarstaður fyrir barnið, þar sem því líður vel, getur fundið frið og dundað sér og leikið í ró og næði, án alls áreitis. Ég vil að þau geti gengið að dótinu sínu sem vísu og þekki það að hvert leikfang og hver tegund af dóti á sinn stað í herberginu.

Það gerir þeim og mér auðveldara fyrir að taka til í herberginu og ganga frá.  Í næsta leik vita þau svo nákvæmlega hvar dótið er að finna og hvert á að ganga frá því. Auðvelt og einfalt skipulag í barnaherbergi getur því skipt sköpum að mínu mati, bæði fyrir foreldra og barnið sjálft.

Friðsæll og notalegur griðarstaður þar sem barnið nýtur sín í leik

Einnig legg ég áherslu á í herbergjum barnanna minna að þau endurspegli smá karakter barnanna. Ég jafnvel leyfi þeim sjálfum að ráða, um leið og þau hafa aldur til, hvernig þau vilja hafa í herberginu sínu. Reynir Leo t.d. vildi hafa allt svart og hvítt og hafa fjöll á veggnum. Allt þetta var uppfyllt, en ég dró mörkin við rauðar doppur sem hann vildi hafa á veggjunum. Allir mjög sáttir samt 🙂

Í húsinu eru þrjú barnaherbergi, eitt stórt og tvö eins herbergi sem eru í smærri kantinum. Þar sofa tvö yngstu börnin. Ég hef nú þegar sýnt frá herbergjum Reynis Leo og Mikaels. Til að sjá þau ýtið þá á nöfnin þeirra og þá linkast beint inn á herbergin þeirra.

Svona leit herbergið út þegar við komum að skoða húsið. Virkar mjög lítið

Þegar barnaherbergi eru lítil er uppröðun á húsgögnum, hæð þeirra, litur og skipulag mjög mikilvægt. Hægt er að plata augað töluvert með uppröðun og réttu vali á húsgögnum. Mér finnst t.d. herbergin virka mun stærri núna en þau gerðu þegar við komum að skoða húsið. Hafið einnig í huga að oft geta tóm rými virst minni en þau raunverulega eru, andstætt við það sem margir halda. Mottur, myndir á veggi og hvernig allt þetta snýr getur líka haft sitt að segja til að láta rými njóta sín og virka stærra.

Dæmi ef herbergi er langt og mjótt er betra að reyna að stilla öllu þversum í herberginu til að víkka út sjóndeildarhringinn og láta þá augað halda að herbergið sé breiðara. Ef húsgögnum er raðað langsum í langt og mjótt herbergi getur það virst enn lengra og mjórra. Tvö minni barnaherbergin eru t.d. meira á lengdina en breiddina og því raða ég stóru húsgögnunum þversum eins og rúmunum þeirra. Strax við það virka herbergin breiðari sem dæmi.

Annað trix sem ég nota í litlu herbergin er að hafa húsgögn mjög lág og í smærri kantinum. Í öllum barnaherbergjunum eru t.d. kommóður sem er smærri útgáfan af Malm kommóðum og kosta ekki nema 3800 kr. Þær eru mjög fínar meðan börnin eru lítil og virka vel, en þær taka lítið pláss og eru stílhreinar.

Einnig reyni ég að hafa öll önnur húsgögn eins og rúm, skrifborð, stóla og skúffueiningar í lárri hæð. Svo fylli ég upp í með því að setja eitthvað fallegt á veggina eins og fjöll í drengjaherbergin en doppur á einn vegg inni hjá Ölbu. Doppurnar keypti ég á poster.is og fást þær í öllum stærðum og gerðum.

Hér er svo sama herbergið séð frá sama sjónarhorni eftir að við breyttum því 

Ég valdi að hafa alla veggina hvíta en það bæði birtir upp og stækkar rýmið. Einnig reyni ég að hafa húsgögn í ljósum litum og veggmyndir sem mest ævintýralegastar og eins lágstemmdar og hægt er. Disney plaggöt og of mikið í gangi finnst mér oft æsa rýmið upp og virka kaótískt. Ég tel að það geti síðan haft áhrif á skap og líðan barnsins.

Ævintýralegar en jafnframt lágstemmdar myndir sem fegra barnaherbergið svo um munar 

Langar samt að koma rétt inn á það að dökkir litir geta líka skapað ró og hlýleika inn í barnaherbergjum. Passið bara að hafa þá ekki æpandi skæra eins og rautt, appelsínugult eða marga liti í einu rými. Það getur verið mjög örvandi og jafnvel valdið barninu æsing og angist þar inni.

Mín ráð til ykkar eru því að gera herbergi barnsins ykkar sem persónulegast fyrir það, sem friðsælast og munið að gefa hverjum hlut sinn stað sem barnið gengur að vísu. Reynið að hafa herbergið snyrtilegt og lágstemmt svo að barnið finni þar ró og frið.

En hér koma nokkrar myndir að lokum sem ég vona að gleðji augað

Fallega dúkkurúmið fékk Alba í jóla og afmælisgjöf frá langömmu Rúnu. Rúmið er keypt í Petit

Fallegi dúkkuvagninn er frá I am Happy 

Mér finnst mjög gaman að nota litla sæta sparikjóla og falleg skópör til að skreyta herbergið 

Ballerínurnar eru keyptar í Laura Ashley, sem og mottan og ljósið

Hillurnar keypti ég í Rúmfatalagernum og einnig húsið sem hangir á veggnum á eftri myndunum

Fallega værðarvoðið er vöggugjöf frá Paz föðursystir minni á Spáni frá því ég átti Gabríelu

Lítið og krúttilegt leshorn 

Dúkkan sem þykir pínu skuggaleg en samt svo sæt

Í húsinu voru fallegar marmaragluggakistur sem mér finnst fara afar vel í þessu fallega barnaherbergi 

Held það sé óhætt að segja að Mrs Mighetto myndirnar séu í miklu uppáhaldi hjá okkur 

 

 

Ég vona að þið hafið notið færslunnar og getið tileinkað ykkur eitthvað af þessum einföldu ráðum

Þangað til næst……knús <3

María 

Aðrar greinar sem þér gæti líkað

Skrifaðu athugasemd

The maximum upload file size: 4 MB. You can upload: image, spreadsheet, interactive, text, archive, code, other. Links to YouTube, Facebook, Twitter and other services inserted in the comment text will be automatically embedded. Drop file here